fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Þetta þarf íslenska liðið til að ná alla leið – „Þessi fjögur at­riði eru þau allra mikil­vægustu“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. janúar 2023 14:30

Logi Geirsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trú – Skýr markmið – Jákvætt viðhorf – Einbeiting á eigin getur/skýr hlutverk. Þetta eru þau fjögur atriði sem eru lykillinn að því að skila íslenska landsliðinu á verðlaunapall á HM í handbolta, að mati Loga Geirssonar, handboltasérfræðings og fyrrverandi verðlaunahafa með íslenska landsliðinu.

Logi fer yfir þetta í viðtali við Fréttablaðið í dag. Logi vann silfur á Ólypmíuleikunum sem leikmaður með íslenska landsliðinu, og brons á EM. Hann segir að á þeim tíma þegar landsliðið var sigursælast hafi það einbeitt sér að eigin getu og styrk en hugsað minna um andstæðinginn:

„Hvað við gætum gert vel og hugsuðum minna út í and­stæðinginn, í hverju þeir væru góðir. Við unnum í okkur sjálfum og hugsuðum miklu frekar hvað við værum góðir og hvað and­stæðingurinn þyrfti að gera til þess að vinna okkur. Við lærðum að vera stóra liðið, það hefur oft vantað í lands­lið Ís­lands.

Þegar svona sigur­vegarar fara úr liðinu líkt og gerðist með lands­liðið á sínum tíma þá þurfa bara nýir að koma inn, það kemur nýr kúltúr inn í liðið og þeir sem hafa náð að vinna, leik­menn eins og Aron Pálmars­son, þurfa að telja hinum trú um að við getum þetta. Við efldum liðs­heildina á sínum tíma, skil­greindum okkar hlut­verk, allir vissu sín hlut­verk.“

Logi er á því að við þurfum að hugsa stórt og þora setja okkur stór markmið:

„Fegurðin við mark­miða­setningu er þannig að um leið og þú hefur sett þér mark­mið sem þú ætlar að reyna að ná, þá ferðu að spyrja þig: Hvað þarf ég að gera til þess að ná þessum mark­miðum? Það er þá sem töfrarnir eiga sér stað.“

Logi segir ennfremur að jákvætt viðhorf sé mjög mikilvægt. Segir menn hafi breytt viðhorfi sínu í liðinu sem varð sigursælast í íslenskri handboltasögu og vann til verðlauna á Ólympíuleikunum og EM:

„Við breyttum því hvernig við töluðum í lands­liðinu, sögðum enga nei­kvæða hluti. Við töluðum ekki um að vera að eyða tíma saman á hótelinu í lands­liðs­verk­efnum, við töluðum um að verja tíma saman. Inni á vellinum kölluðum við aldrei „Strákar! Engar tvær mínútur,“ það var nei­kvætt, í stað þess sögðum við „Halda sér inn á“.“

Já­kvæða við­horfið hafi verið gegnum­gangandi í lands­liðs­verk­efnum, sama hvort um hafi verið að ræða að­stæður utan eða innan vallar.

„Þetta var í rútunni, þetta var á hótelinu, æfingum og í leikjunum. Óli Stef á heiðurinn af þessu, hann breytti þessu á alveg magnaðan hátt, maður upp­lifði stóra breytingu.““

 

Sjá nánar á vef Fréttablaðsins

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ef málið væri ekki svona alvarlegt ættu viðbrögð SVEIT heima í áramótaskaupinu

Ef málið væri ekki svona alvarlegt ættu viðbrögð SVEIT heima í áramótaskaupinu
Fréttir
Í gær

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“
Fréttir
Í gær

Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT

Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT