fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Formaður Læknafélagsins segir erfitt að heyra skilningsleysi ráðamanna á stöðunni á Landspítalanum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. desember 2022 18:00

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir að það hafi verið erfitt að heyra Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, lýsa því yfir að hann skildi ekki hvað neyðarkall hennar sem formaður Læknafélags Íslands vegna manneklu og ofurálags snerist um. Þetta kemur fram í aðsendri grein Steinunnar á vef Vísis þar sem hún fer yfir fordæmalaust ástandið á Landspítalanum.

Ekki ráðist í neinar aðgerðir

Hún segist þó hafa skilning á því að fólk skilji ekki af hverju ástandið skáni aldrei.

„Fyrirsagnirnar eru margar, neyðarástand á neyðarástand ofan, fjöldauppsagnir, starfsfólk sem reiðist, grætur, öskrar, þegir og gefst upp. Það er örugglega líka erfitt að skilja hvers vegna þessi gífuryrði og hamfarafréttir taka engan enda, enda hlýtur eitthvað að hafa breyst á öllum þeim árum sem þessi ósköp hafa dunið yfir? Einhver hlýtur að hafa hlustað, ekki satt? Er ekki komið gott af þessum endalausa bölmóð? Svarið er ekki einfalt, ýmsir hafa hlustað, margt gott og hæft fólk hefur reynt að slökkva eldana, en staðan er samt áfram akkúrat sú – við erum föst í að slökkva elda og náum ekki að komast í uppbygginguna sem er nauðsynleg til að eldarnir kvikni ekki aftur. Stjórnvöldum hefur verið fullkunnugt um ástandið árum saman, en þau hafa þrátt fyrir það ekki ráðist í neinar af þeim aðgerðum sem hefðu getað afstýrt stöðunni eins og hún blasir við í dag,“ skrifar Steinunn.

Fyrirsjáanlegar veirusýkingar setja allt á hliðina

Hún segir að eldurinn á Landspítalanum sé óvenju skæður núna. Margar erfiðar veirusýkingar herja samtímis á landsmenn og því hefur verið haldið fram að það sé meðal annars ástæða þess að staðan er eins og hún er.

„En veirupestir koma á hverjum vetri. Þær eru mjög fyrirsjáanlegar. Af hverju setja þær á hliðina aðalsjúkrahús landsins og eina háskólasjúkrahúsið? Sjúkrahús, sem hefur enga möguleika á að dreifa álaginu eins og hægt er í stærri samfélögum? Sjúkrahús, sem verður að vera vel í stakk búið til að mæta fyrirsjáanlegum álagstoppum, enda verður það undantekningalaust að geta brugðist við ófyrirséðum hamförum sem geta dunið yfir fyrirvaralaust. Undanfarna daga hefur Landspítalinn verið stappfullur upp í rjáfur. Sjúklingar, sem ættu að vera á gjörgæslu liggja á yfirfullri bráðamóttöku. Sjúklingar, sem ættu að vera í einangrun vegna bráðsmitandi veirusýkinga liggja á göngum og á fjölbýlum, jafnvel innan um háaldrað fólk með heilabilun. Verið er að opna fleiri legurými í snarhasti til að slökkva eldinn. Til þess þarf starfsfólkið að bæta enn fleiri verkefnum á sig. Því fjölgar ekki í takt við sjúklingana,“ skrifar Steinunn.

Hvað þarf að gera til að ráðamenn skilji?

Hún segist velta því fyrir sér hvernig hægt sé að lýsa stöðunni á Landspítalanum svo ráðamenn skilji.

„Svo dregið verði úr rúmanýtingu Landspítalans þannig að hún sé ekki um og yfir 100% á hverjum einasta degi ársins, hlutfall sem er langt yfir öryggismörkum. Svo farið verði að taka af alvöru myndugleik á útskriftavanda spítalans með kröftugri uppbyggingu utanspítalaþjónustu sem tekur mið af raunveruleikanum sem blasir við þjóð sem eldist hratt. Svo farið verði í alvöru átak til að vinna á biðlistum eftir aðgerðum og annarri bráðnauðsynlegri þjónustu. Svo heilsugæslan verði efld til að sinna grunnhlutverki sínu sem fyrsti viðkomustaður veikra í heilbrigðiskerfinu. Svo styrkum stoðum verði aftur rennt undir þá mikilvægu þjónustu sem sjálfstætt starfandi læknar veita og sem léttir tvímælalaust álagi af sjúkrahúsum og heilsugæslu,“ skrifar Steinunn.

Hvað gerist næsta vetur?

Hún segir að neyðarkallið snúist um þetta en ekki bráðabirgðalausnir til að slökkva elda í sífellu.

„ Vissulega er nauðsynlegt að slökkva eldinn sem brennur þessa dagana áður en allt brennur til kaldra kola. Ég treysti framlínustarfsfólki í heilbrigðiskerfinu vel til þess verks, með fulltingi stjórnvalda og stjórnenda heilbrigðisstofnana. En hvað gerist í sumar þegar þetta sama framlínustarfsfólk þarf verðskuldað sumarfrí? Verður heilbrigðisstarfsfólkið þá þriðja árið í röð kallað til vinnu úr sumarfríum sínum vegna manneklu? Hvað gerist næsta vetur þegar veirurnar fara aftur á stjá? Fer þá aftur allt á hliðina eða verður búið að grípa til aðgerða sem duga?“ skrifar formaðurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“

Nafntogaðir einstaklingar rökræða neikvæðan dóm um tónleika Bríetar – „Það getur ekki alltaf allt verið gott“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ef málið væri ekki svona alvarlegt ættu viðbrögð SVEIT heima í áramótaskaupinu

Ef málið væri ekki svona alvarlegt ættu viðbrögð SVEIT heima í áramótaskaupinu
Fréttir
Í gær

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“
Fréttir
Í gær

Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT

Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT