fbpx
Sunnudagur 04.maí 2025
Fréttir

Barðavogsmálið – Magnús neitar að hafa myrt Gylfa

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 30. ágúst 2022 16:46

Magnús Aron Magnússon leiddur burt af lögreglu frá mótmælafundi á Austurvelli árið 2019. Mynd úr Fréttablaðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Aron Magnússon, sem sakaður er um að hafa orðið nágranna sínum í Barðavogi, Gylfa Bergmanni Heimissyni að bana fyrir utan heimili þeirra neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Frá þessu greinir Vísir.

Þinghald í málinu verður opið, en verjandi Magnúsar fór fram á lokað þinghald sem saksóknari og lögmaður fjölskyldu Gylfa mótmæltu.

Vísir greinir frá því að Magnús hafi verið leiddur inn í dómsal í járnum klukkan 15 í dag, en hann hefur verið ákærður fyrir að hafa orðið Gylfa að bana laugardaginn 4. júní fyrir utan heimili þeirra í Barðavogi. Sagt er í ákæru að Magnús hafi veist að Gylfa með ofbeldi inni á stigagangi hússins og átökin svo færst út. Er Magnús sakaður um að hafa sparkað í Gylfa og kýlt hann, fellt hann niður og svo stappað á andliti hans og brjóstkassa. Offorsið hafi verið slíkt að Gylfi hafi margbrotnað á kjálka, hlotið brot á nefbeini, kinnbeini og tungubeini auk þess að hafa marist víða um líkamann og hlotið blæðingar. Áverkarnir hafi verið slíkir að Gylfi hafi átt erfitt með að anda og í kjölfarið látist á vettvangi meðal annars með mar á heila.

Eins og áður segir neitar Magnús sök í málinu en verjandi hans segir að Magnús líti svo á að andlát Gylfa hafi borið að í átökum og að lýsingar í ákæru séu rangar.

Níu gera bótakröfu í málinu. Fjögur börn Gylfa, fjögur systkini hans og eitt foreldri. Magnús viðurkennir bótakröfu barna og foreldris en hafnar bótakröfum systkina.

Enn er verið að framkvæma sakhæfismat á Magnúsi.

Magnús hefur áður verið sakfelldur fyrir ofbeldi og brot á barnaverndarlögum, en árið 2020 var hann fundist sekur um að hafa veist að ungum dreng árið 2019 með ofbeldi, yfirgangi og vanvirðandi háttsemi. Þá var Magnús tæplega 18 ára að aldri. Var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og var því enn á skilorði nú í júní er Gylfi lét lífið.

Árið 2019 var hann handtekinn vegna ofbeldisfullrar hegðunar í garð mótmælenda á Austurvelli sem þá lýstu stuðningi við flóttamenn. Eins hefur Magnús ratað í fréttir fyrir ofbeldi gegn hundum í Langholtshverfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins
Fréttir
Í gær

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu