fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Elliði fékk fallegt bréf frá 9 ára dreng – „Framtíðin er björt á meðan við eigum svona öfluga einstaklinga til að taka við keflinu“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 24. ágúst 2022 10:30

Elliði Vignisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elliði Vignisson hefur bráðum starfað í 17 ár sem bæjarstjóri, fyrst í Vestmannaeyjum og nú í Ölfusi. Elliði segir að erindin sem hann hefur fengið til meðferðar á þessum árum telji í þúsundum, jafnvel tugum þúsunda. Það breytir því þó ekki að erindi nokkuð sem hann fékk á dögunum er að hans mati eitt hið fallegasta af þeim þúsundum sem hann hefur fengið.

„Þetta erindi frá honum Hrólfi Vilhelm, vini mínum og nágranna, er eitt hið fallegasta,“ segir Elliði í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Um er að ræða bréf frá Hrólfi sem er einungis nýorðinn 9 ára gamall. „Hæ Elliði. Ég er 9 ára og bý á Þóroddsstöðum og er hjá pabba mínum aðra hverja viku og mig langar til að hjóla í sveitinni en ég get það ekki. Það vantar hjólastíga. Kveðja Hrólfur Vilhelm. Vona að þú svarir,“ segir Hrólfur í bréfinu til Elliða og lætur fylgja með fallega teiknaða mynd.

Elliði tók vel í bréf Hrólfs og segir að eðli máli samkvæmt fari þetta vandaða erindi til formlegrar meðferðar, það verður því lagt fyrir bæjarstjórn á morgun. „Hér minnir hann á mikilvægi þess að við hugum að hjólastígum í dreifbýlinu,“ segir Elliði og bætir við að Hrólfur hafi að sjálfsögðu fengið persónulegt svar eins og hann óskaði eftir.

„Framtíðin er björt á meðan við eigum svona öfluga einstaklinga til að taka við keflinu. Hamingjan er hér,“ segir hann að lokum.

Hægt er að sjá færslu Elliða og mynd af bréfinu hér fyrir neðan:

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump