fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Nýtt eldgos ekki útilokað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 30. júlí 2022 17:38

Fagradalsfjall. Mynd: Snorri Þór Tryggvason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um klukkan 15 í dag lýstu Almannavarnir yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu sem hefur verið í gangi á Reykjanesskaga frá því upp úr hádegi í dag og frameftir degi. Hefur Veðustofa Íslands sett Krýsuvík á gult vegna flugumferðar em mesta virknin hefur verið norðaustan við Fagradalsfjall. Stærsti skjálftinn í dag mældist  4,4 en margir skjálftar yfir 3 hafa einnig mælst.

Í tilkynningunni segir ennfremur:

„Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni.  Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað.“

Samkvæmt viðtali mbl.is við Einar Hjörleifsson, náttúruvásérfræðing á Veðurstofu Íslands, er ekki hægt að útiloka að eldgos sé í vændum. Ef hlé yrði á skjálftunum gæti það verið undanfari eldgoss en ekki er komið að þeim tímapunkti ennþá. Óróapúls hefur mælst, sem er til til marks um áhlaup kviku undir yfirborði jarðar sem ekki hafi náð alla leið upp á yfirborðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.