Dómurinn er umfjöllunarefni leiðara Fréttablaðsins í dag en hann skrifar Björk Eiðsdóttir. Hún rifjar upp að Gísli hafi verið sakfelldur fyrir að hafa beitt þáverandi sambýliskonu sína ofbeldi sem varð til þess að hún fann sig tilneydda til að flýja heimilið um miðja nótt, berfætt og aðeins með svefnpoka meðferðis. „Ef Gísli brýtur ekki af sér næstu tvö árin mun hann aldrei sitja í fangelsi í þessa tvo mánuði sem dómurum þótti hæfileg refsing og skilorðsbundu. Hann mun því líklega aldrei sæta refsingu fyrir þann skaða sem hann olli konu sem eitt sinn treysti honum og deildi með honum lífi,“ segir Björk og bætir við að hálfa milljónin í miskabætur séu hneisa, lögmaður konunnar hafi farið fram á þrjár milljónir sem sé ekki há upphæð en hefði hugsanlega haft eitthvað að segja í þann kostnað sem konan þurfti að standa straum af þegar hún missti heimili sitt skyndilega.
Björk víkur síðan að því sem var talið koma til refsilækkunar: „Sakfelldi var ekki með brotasögu og játaði brot sitt. Það gerði hann þó ekki fyrr en fyrir dómi. Ekki við skýrslutöku lögreglu og aldrei á því eina og hálfa ári sem leið frá því kæra var lögð fram og þar til málið var dómtekið. Aldrei. Slík var iðrunin.“
Í niðurlagi greinarinnar segir hún að konan, þolandinn, hafi skýrt frá því eftir að dómur féll að ítrekaðar neitanir hans hafi margfaldað vanlíðan hennar og að hún hafi sagt að kæruferlið hafi á margan hátt gert upplifunina af ofbeldinu verri. „Það þarf kjark, úthald og fjármagn til að stíga fram og kæra ofbeldi af þessu tagi. Dómar eins og sá sem hér hefur verið tíundaður eru lítil hvatning til þess að leggja slíkt á sig og sína,“ segir Björk síðan að lokum.