fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fréttir

Bryndís segir að þetta sé eina raunhæfa leiðin til að verja Úkraínu fyrir Pútín

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 4. mars 2022 19:17

Myndin er samsett - Til vinstri: Bryndís Haraldsdóttir - Til hægri: Vladimir Pútín

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Allsherjar hernaðarárás Pútíns og hans fylgjanda á Úkraínu er ógn við frið og stöðugleika í Evrópu allri. Það að ráðast inn í frjálst og fullvalda ríki er líka ógn við heimsmynd okkar og skýrt brot á alþjóðalögum.“

Svona hefst pistill sem Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag. Í honum ræðir hún um stríðið í Úkraínu og þá sérstaklega hvað hefði verið hægt að gera til að koma í veg fyrir stríðið en einnig hvað sé hægt að gera núna til að binda enda á það.

„Hugur okkar er hjá úkraínsku þjóðinni sem má þola hryllilegar og grimmilegar sprengjuárásir frá hersveitum Rússa. Þessar tilhæfulausu árásir Pútíns, sem hafa í för með sér mannfall og tjón meðal almennra borgara og reka gríðarlegan fjölda fólks á flótta, sýna að stjórnvöld í Rússlandi bera enga virðingu fyrir mannslífum og rétti fólks til frelsis og lýðræðis. Það er eðlilegt að spyrja sig afhverju er þessi staða komin upp,“ segir Bryndís.

Þá spyr hún hvers vegna það hafi ekki tekist að halda frið í Evrópu þrátt fyrir Evrópusambandið og markmið þess um frið, þrátt fyrir Sameinuðu þjóðirnar og þrátt fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. „Þrátt fyrir öll fallegu fyrirheitin? Svarið hlýtur að liggja í því að lýðræði sé besta tryggingin fyrir frið, þegar einræðið tekur völdin er hætt á stríði,“ segir hún.

„Hvað ef?“ spurningarnar

Eins og áður segir veltir Bryndís því fyrir sér hvernig hægt hefði verið að koma í veg fyrir stríðið. „Hvað ef Lukashenko hefði ekki tekist að stela forsetastólnum og forseti Hvíta Rússlands væri sú sem að öllum líkindum var raunverulega kosin af þjóðinni 2020, Sviatlana Tsikhanouskaya?“ spyr hún fyrst.

„Tsikhanouskaya hefur fordæmt innrásina og gagnrýnt einræðisstjórn Hvíta Rússlands fyrir að hleypa rússneska hernum í gegnum Hvíta Rússland. Hún segir stríðið, stríð Pútíns og Lukashenko gegn lýðræði í heiminum, ég er henni sammála. Ef hún væri forseti hefði Pútín ekki geta ráðist inn í Úkraínu í gegnum og með stuðningi Hvíta Rússlands.“

Þá spyr hún hvað hefði gerst ef Evrópa og sérstaklega Þýskaland hefðu ekki gert sig háða rússnesku gasi? „Ef Evrópa væri sjálfbær um orku hefðu ekki billjónir evra runnið inn í rússneskan efnahag? Rússar hafa ekki sterkan efnahag en búa yfir öðrum stærsta her í heimi á eftir Bandaríkjunum,“ segir hún.

„Hvað ef Pútín hefði ekki komist upp með að yfirtaka Krímskaga 2014, væri hann þá nokkuð að reyna að yfirtaka Úkraínu alla núna? Hvað ef Pútín hefði ekki komist upp með innrás í Georgíu 2008?“

„Eina raunhæfa leiðin til að verja Úkraínu“

Bryndís segir þá að „hvað ef“ spurningarnar séu margar en að þær séu ekki lykilspurningar núna. Lykilspurningarnar núna eru hins vegar hvernig hægt sé að koma í veg fyrir frekara mannfall. „Hvernig komum við í veg fyrir það að ráðist sé með herafli inn í frjáls og fullvalda ríki? Svarið hlýtur að liggja í því að við stöndum öll vörð um mannréttindi og lýðræði,“ segir hún.

Samkvæmt Bryndísi er aðeins ein raunhæf leið sem hægt er að fara til að verja Úkraínu. „Eina raunhæfa leiðin til verja Úkraínu er að Pútín einangrist og að stuðningsmenn hans snúi við honum baki,“ segir hún.

„Að hermenn rússneska hersins leggi niður vopn sín þegar þeir átta sig á því að þeir eru ekki að bjarga neinum eins og Pútín hefur látið í veðri vaka heldur þvert á móti þá eru þeir að berjast við bræður sínar og systur, saklaust fólk sem hefur ekkert til þessa unnið. Fólk sem einfaldlega stendur vörð um sjálfstæði þjóðar sinnar.“

Að lokum segir hún að raddir allra sem aðhyllast mannréttindi, frið og að alþjóðalög séu virt þurfi að heyrast alls staðar og að þær þurfi að heyrast hátt. „Slík samstaða er eina leiðin til að friður komist aftur á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Stöð 2 veldur Helgu vonbrigðum

Stöð 2 veldur Helgu vonbrigðum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Í gær

Fyrrverandi eiginkona læknisins í sjokki yfir dómi Landsréttar

Fyrrverandi eiginkona læknisins í sjokki yfir dómi Landsréttar
Fréttir
Í gær

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“
Fréttir
Í gær

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“
Fréttir
Í gær

Ellefu hljóta myndarlegan styrk upp á 3,5 milljónir króna frá stofnun Leifs Eiríkssonar

Ellefu hljóta myndarlegan styrk upp á 3,5 milljónir króna frá stofnun Leifs Eiríkssonar
Fréttir
Í gær

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli
Fréttir
Í gær

169 einstaklingar sem finnast ekki

169 einstaklingar sem finnast ekki