fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Nafn komið á nýtt íþróttahús í Garðabæ – 23 einstaklingar fá viðurkenningu fyrir hugmyndina

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 17. janúar 2022 14:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt fjölnota íþróttahús í Garðabæ mun bera nafnið Miðgarður. Hugmyndasamkeppni um nafnið var opnuð í fyrra og voru alls 23 sem stungu upp á nafninu Miðgarður. Kemur fram í fréttatilkynningu um málið að þessir 23 munu fá viðurkenningu en ekki greinir frá því í hverju viðurkenningin er fólgin. Alls bárust 250 tillögur að nafni í samkeppnina.

Tilkynning um málið er eftirfarandi:

„Nýtt fjölnota íþróttahús sem er staðsett í Vetrarmýri í Garðabæ mun bera heitið Miðgarður.
Garðabær efndi haustið 2021 til nafnasamkeppni um nafn á nýja fjölnota íþróttahúsinu í Garðabæ sem var öllum opin og íbúar hvattir til að taka þátt í. Dómnefnd í nafnasamkeppninni var skipuð þeim Almari Guðmundssyni, Björgu Fenger og Baldri Ó. Svavarssyni, fulltrúum bæjarstjórnar í undirbúningsnefnd um byggingu hússins. Dómnefndinni til ráðgjafar var Jóhannes B. Sigtryggsson, rannsóknarlektor hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Jafnframt störfuðu þau Kári Jónsson íþrótta- tómstunda- og forvarnarfulltrúi og Sunna Stefánsdóttir samskipta og kynningarfulltrúi Garðabæjar með dómnefndinni.

Alls bárust um 250 mismunandi tillögur um nafn á húsinu sem dómnefnd valdi svo úr.  Niðurstöður dómnefndar voru samþykktar af bæjarráði Garðabæjar í janúar 2022. Hugmyndirnar sem bárust voru frumlegar og skemmtilegar. Örnefni í nágrenni íþróttahússins ásamt tengingum við önnur heiti á mannvirkjum og stöðum í Garðabæ voru þó greinilega ofarlega í hugum fólks. Alls voru 23 aðilar sem sendu inn tillögu um nafnið Miðgarð í nafnasamkeppninni.

Dómnefndinni þótti tengingin við „Garða“ álitleg en mörg sérnöfn í Garðabæ bera þá tengingu. Tengsl við goðafræðina og þar með við Ásgarðssvæðið taldi dómnefndin einnig skemmtilega en með því kallast tvö af íþróttasvæðum bæjarins á við hvort annað. Samkvæmt goðafræðinni er Miðgarður miðja heimsins og sá staður þar sem mannfólkið býr. Það rímar vel við hugmyndir um fjölnota íþróttahúsið þar sem vonast er eftir lífi og fjöri á degi hverjum ásamt því að þar verður rými fyrir fjölbreytt viðfangsefni. Þeir 23 aðilar sem komu með tillögu að nafninu Miðgarður munu hljóta viðurkenningu.

Miðgarður er með rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð og klifurvegg innanhúss auk teygju- og upphitunaraðstöðu og fyrsta flokks styrktar- og þrekæfingaaðstöðu, ásamt tilheyrandi stoðrýmum og verður því mikil lyftistöng fyrir íþrótta- og heilsueflandi starfsemi í bænum. Þessa dagana er unnið að lokafrágangi í íþróttahúsinu og reiknað er með að öllu óbreyttu, þá með tilliti til heimsfaraldurs og úttektar á húsinu, að  Miðgarður opni fyrir æfingar hjá fyrstu iðkendum um mánaðamótin og verði kominn í fulla notkun í mars nk.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast