fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Gordon Ramsay ráðinn dósent í Háskólanum á Akureyri

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 17. september 2021 13:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gordon Neil Ramsay var nýlega ráðinn dósent í fjölmiðlafræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á innri vef háskólans í gær en annar dósent í skólanum, Birgir Guðmundsson, vekur athygli á ráðningu Ramsay í færslu sem hann birti á Facebook-hópnum Fjölmiðlanördar.

Nafn Gordon Ramsay hringir eflaust einhverjum bjöllum hjá aðdáendum raunveruleikasjónvarpskokkaþátta en þessi Gordon er ekki sá sami og hefur skemmt áhorfendum með reiði sinni og eldamennskutöfrum. Þessi Ramsay virðist þó vera jafn fær í fjölmiðlum og nafni hans er í eldamennskunni ef marka má afrek hans í bransanum.

„Ný rödd í íslenskri fjölmiðlaumræðu!“ segir Birgir í færslunni sem hann birti en rödd Ramsay er langt frá því að vera reynslulaus þegar kemur að fjölmiðlum, ferilskrá hans er ansi stórfengleg. „Hann hefur meira en 10 ára reynslu af kennslu og rannsóknum á sviði stefnumótunar fyrir fjölmiðla,“ segir til að mynda í tilkynningunni um ráðningu hans.

Þá kemur einnig fram að hann hafi til dæmis rannsakað breytingar á hlutverki fjölmiðla í kosningum en eftir það gekk hann til liðs við ráðgjafafyrirtækið Media Standars Trust. „Þar vann hann að rannsóknum og gerð stefnumótunartillagna varðandi sjálfseftirlit breskra fjölmiðla.

Árið 2015 stofnaði Ramsay ásamt fleirum Study of Media, Communication and Power, rannsóknarmiðstöð í fjölmiðlum við Kings College í London. Síðustu ár hefur hann til að mynda starfað við háskólana í Westminister og Goldsmith’s College en auk þess hefur hann verið ráðgjafi stjórnvalda í Bretlandi og í Singapore.

„Rannsóknir hans eru á sviði blaðamennsku og lýðræðis, hnignun staðbundinna frétta, og upp á síðkastið hefur hann skrifað um þá hættu sem blaðamennsku og borgurum stafar af upplýsingamengun,“ segir að lokum um Ramsay í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans