fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
Fréttir

Skoða hvort skaðabótakrafa verði gerð á hendur fyrrum skiptastjóra vegna sölu Þóroddsstaða

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 4. ágúst 2021 08:00

Lárus Sigurður Lárusson. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki er útilokað að skaðabótakrafa verði gerð á hendur fyrrum skiptastjóra þrotabús Þóroddsstaða ehf, vegna sölu á helstu eign þrotabúsins. Lárusi Sigurði Lárussyni var vikið úr starfi skiptastjóra á síðasta ári með dómi héraðsdóms en Landsréttur felldi þann úrskurð síðan úr gildi. Lárus óskaði síðan sjálfur eftir því að annar skiptastjóri yrði skipaður yfir búinu þar sem trúnaðarbrestur hefði orðið á milli hans og kröfuhafa.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Gísli Guðni Hall, hæstaréttarlögmaður, var skipaður skiptastjóri búsins og hefur hann nú gert kröfu um að dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að leggja mat á raunverulegt verðmæti þrotabúsins og hæfilegt söluverð helstu eignar þess, sem er húsið Þóroddsstaðir sem stendur við Skógarhlíð. „Ég vil sem skiptastjóri fá mat á því hvað hafi verið hæfilegt söluverð með vísan til þess hvernig staðið var að sölunni,“ er haft eftir Gísla sem sagði einnig að um nauðsynlegt skref sé að ræða til að hægt sé að meta hvort grundvöllur sé fyrir kröfugerð á hendur Lárusi og lögmannsstofunni og fasteignasölunni sem hann starfar á.

Í úrskurði héraðsdóms frá því í nóvember kemur fram að ástæðan fyrir brottvikningu Lárusar úr starfi skiptastjóra sé framferði hans í tengslum við sölu á húsinu Þóroddsstöðum. Fram kemur að áður en fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta hafi húsið verið til sölu hjá fasteignasölunni Mikluborg. 200 milljóna króna tilboð hafi borist í eignina en salan hafi ekki gengið í gegn þar sem kaupandinn gat ekki fjármagnað þau.

Eftir að Lárus var skipaður skiptastjóri hafi hann tekið húsið úr sölu hjá Mikluborg en skömmu síðar var það selt sama aðila og hafði gert kauptilboð í það í gegnum Mikluborg. Nú var það fasteignasala Sævars Þórs Jónssonar, eiginmanns og samstarfsmanns Lárusar sem sá um söluna. Kaupverðið var 130 milljónir eða 70 milljónum króna lægra en fyrra kauptilboð.

Í úrskurðinum var sú ályktun dregin að eiginhagsmunir Lárusar hefðu ráðið því að eignin var seld í gegnum fasteignasölu eiginmanns hans sem fékk þar með söluþóknun fyrir vikið.

Landsréttur felldi úrskurð héraðsdóms úr gildi þar sem hann taldi Lárus ekki hafa brotið gegn skyldum sínum sem skiptastjóri en sagði að ýmislegt hefði mátt betur fara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Í gær

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð
Fréttir
Í gær

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd

Fyrir 2 dögum

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug