55 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Virkum smitum hefur fækkað nokkuð undanfarið og voru 1.170 í gær.
Tæplega 3.000 voru tekin í gær. Færri sýni eru tekin um helgar en engu að síður er þetta mjög há sýnatökutala ef miðað er við sýntatökufjölda sem tíðkaðist áður en faraldurinn fór aftur á flug í sumar.
30 voru á sjúkrahúsi með Covid-sjúkdóminn í gær, þar af sex á gjörgæslu.