fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

130 milljónir endurgreiddar á fyrstu tveimur mánuðum ársins

Bjarki Sigurðsson
Föstudaginn 5. mars 2021 09:45

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert lát er á endurgreiðslum á virðisaukaskatti vegna vinnu iðnaðarmanna við endurbætur og viðhald. Alls hafa borist tæpar 9.000 endurgreiðslubeiðnir til Skattsins samanborið við allt árið 2020 þegar að 45.000 endurgreiðslubeiðnir bárust og árið 2019 þar sem tæplega 12.000 endurgreiðslubeiðnir bárust. Endurgreiðslur á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2021 námu alls 130 milljónum króna. Alls hafa þegar verið afgreiddar 1.500 endurgreiðslubeiðnir vegna 2021.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samiðn, Sambandi iðnfélaga.

„Það stefnir í metár í framkvæmdum hér á landi ef heldur fram sem horfir. Iðnaðarmenn hafa haft nóg að gera enda sjá margir tækifæri að láta gera við húsnæði og bifreiðar og fá virðisaukaskattinn endurgreiddan. Endurgreiðslan var tímabundið hækkuð úr 60 prósent í 100 prósent til að bregðast við niðursveiflu í efnahagslífinu af völdum Covid-19,“ segir Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum er búið að endurgreiða samtals rúmlega 12,2 milljarða vegna vinnu sem framkvæmd var frá mars til áramóta 2020, en alls nemur fjöldi afgreiddra endurgreiðslubeiðna vegna tímabilsins rúmlega 40.000 á fyrstu 9 mánuðum 2020. Um 4,2 milljarðar voru endurgreiddir vegna endurbóta og viðhalds á íbúðarhúsnæði á tímabilinu, 1,7 milljarða vegna nýbyggingar á íbúðarhúsnæði og endurgreiðsla til byggingaraðila nam 5,6 milljörðum. Endurgreiðslur vegna bifreiðaviðgerða námu 264 milljónum. Endurgreiðslur til líknarfélaga námu tæpum 92 milljónum og endurgreiðslur til sveitarfélaga 295 milljónum.

„Ákveðið var að hækka endurgreiðsluhlutfall vegna vinnu við íbúðarhúsnæði fram til ársloka 2021, og víkka út þá heimild þannig að hún taki m.a. einnig til húsnæðis í eigu sveitarfélaga og bílaviðgerða. Við hjá Samiðn lögðum mikla áherslu á þetta átak enda er það atvinnuskapandi og einnig mikilvægt út frá neytendasjónarmiðum enda tryggir það enn frekar að leitað sé til fagmanna sem er mikið kappsmál allra. hefur skilað okkar félagsmönnum aukinni vinnu og verkefnum á þessum erfiðu tímum. Á sama tíma lækkar átakið kostnað almennings en það er mikilvægt að hann geti leitað til fagmanna varðandi byggingarframkvæmdir og bílaviðgerðir og hins vegar verndar það mikilvæg störf í iðngreinum,“ segir Hilmar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum