fbpx
Þriðjudagur 26.ágúst 2025
Fréttir

Margrét og Friðrik Ómar í hár saman – „Háborinn dónaskapur“ segir Margrét eftir einkaskilaboðin frá Friðriki

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 15. nóvember 2021 15:30

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Friðriksdóttir, sem rekur vefinn Fréttin.is, er allt annað en sátt eftir að hún fékk einkaskilaboð frá tónlistarmanninum Friðriki Ómari Hjörleifssyni. Mannlíf fjallaði um málið fyrr í dag.

„Sæl Margrét. Má ég spyrja þig? Ertu óbólusett? Kv. Friðrik“ skrifaði Friðrik í einkaskilaboðunum sem hann sendi til Margrétar. Forvitni Friðriks stafar af því að hann vill ekki fá óbólusetta einstaklinga á tónleikana sína, Margrét má því ekki mæta þar sem hún er ekki bólusett. Það þurfti þó ekki að spyrja Margréti að því þar sem hún greinir sjálf frá því á Facebook-síðu sinni.

Ástæðan fyrir því að Friðrik vill ekki fá óbólusetta einstaklinga á tónleika hjá sér er sú að þeir eru í meiri hættu á að verða veikir. „Friðrik Ómar sendir mér einkaskilaboð og spyr hvort ég sé óbólusett. Er þetta í lagi vill hann kannski líka vita í hvaða blóðflokk ég er?“ skrifar Margrét á Facebook-síðu sína í dag en hún birtir skjáskot af skilaboðunum sem Friðrik sendi á hana.

Margrét svaraði einkaskilaboðunum sem Friðrik sendi en hún birtir einnig skjáskot af svarinu sínu. „Sæll Friðrik. Hvað varðar þig um það hvað ég geri og vel fyrir minn líkama og heilsu?“ segir hún.

„Hvað varðar þessum manni um hvort ég er bólusett eða ekki, bara háborinn dónaskapur svo ekki meira sé sagt.“

Þó svo að Margrét fái ekki stuðning frá Friðriki Ómari fyrir að vera óbólusett þá er annar tónlistarmaður sem stendur þétt við bakið á henni. Það er enginn annar en Gylfi Viðar Ægisson en hann hrósaði henni í dag með færslu sem hann birti á vegg Margrétar. „Þú stendur þig vel Margrét mín!“ skrifaði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Vill að Silja Bára verði rekin: „Hún hefur haft næg tækifæri til að tjá sig en þegir bara“

Vill að Silja Bára verði rekin: „Hún hefur haft næg tækifæri til að tjá sig en þegir bara“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Rafmagnað andrúmsloft í Héraðsdómi Suðurlands – Stefán svaraði fyrstur til saka fyrir morðið á Hjörleifi

Rafmagnað andrúmsloft í Héraðsdómi Suðurlands – Stefán svaraði fyrstur til saka fyrir morðið á Hjörleifi
Fréttir
Í gær

Mikil reiði eftir að dönsk yfirvöld tóku nýfædda dóttur af grænlenskri móður á grundvelli umdeilds prófs

Mikil reiði eftir að dönsk yfirvöld tóku nýfædda dóttur af grænlenskri móður á grundvelli umdeilds prófs
Fréttir
Í gær

Ekkert foreldri hafi óskað eftir flutningi barns síns af Múlaborg

Ekkert foreldri hafi óskað eftir flutningi barns síns af Múlaborg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínsk móðir á Íslandi stefnir barnsföður sínum fyrir héraðsdóm en segir hann vera í felum

Úkraínsk móðir á Íslandi stefnir barnsföður sínum fyrir héraðsdóm en segir hann vera í felum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri ósáttur við hugtakið hinsegin fólk og segir ekkert bakslag í gangi

Snorri ósáttur við hugtakið hinsegin fólk og segir ekkert bakslag í gangi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkt að byggja fjölbýlishús í Reykjanesbæ nærri mögulegu flóðasvæði

Samþykkt að byggja fjölbýlishús í Reykjanesbæ nærri mögulegu flóðasvæði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vandræðahús í Vestmannaeyjum rifið – „Nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu“

Vandræðahús í Vestmannaeyjum rifið – „Nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu“