fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Mygla hrekur skjólstæðinga Félagsbústaða úr húsnæði við JL húsið

Björn Þorfinnsson
Mánudaginn 1. nóvember 2021 16:00

Hringbraut 121

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mygla hefur verið greind í húsnæði Félagsbústaða við JL húsið, nánar tiltekið Hringbraut 121. Þetta staðfestir Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, í skriflegu svari til DV. Alls eiga Félagsbústaðir 12 íbúðir í húsinu en um er að ræða viðbyggingu sem var byggð árið 2003. Íbúðirnar skera sig örlítið frá öðrum íbúðum í eigu stofnunarinnar þar sem að neysla er heimil þar innandyra.

Að sögn Sigrúnar var myglan greind í húsnæðinu í kjölfar ábendinga um vanlíðan og óþægindi þeirra sem dvalið hafa í íbúðunum. Þegar upp komst um mygluna var málið tekið föstum tökum. „Í framhaldi ákváðum við að best væri að  íbúar flyttust tímabundið í annað húsnæði á meðan verið er að kanna hver upptök myglunar eru,“ segir Sigrún. Íbúarnir fluttu síðan um miðjan september í annað úrræði.

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða

„Við fylgjum ákveðnum verkferlum þegar upp koma rakavandamál í húsnum og grunur leikur á að húsnæði kunni að vera heilsuspillandi,“ segir Sigrún. Verið sé að greina orsakir myglunnar og að því loknu verður lagt mat á hverskonar viðgerða sé þörf. „Þegar það liggur fyrir getum við áætlað kostnaðinn,“ segir Sigrún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Í gær

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri