fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Hafa gert samning um gjaldfrjáls hraðpróf

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. september 2021 21:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Testcovid.is hefur gert samning við Sjúkratryggingar um gjaldfrjáls hraðpróf vegna Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryggismiðstöðinni, en hún starfrækir þrjár skimunarstöðvar í samstarfi við Sameind rannsóknarstofu. Þær eru staðsettar við Kringluna, á BSÍ og við Aðaltorg í Reykjanesbæ.

„Það eru stór tíðindi að hraðprófin séu ókeypis fyrir alla. Þau kostuðu áður 6.900 kr. en eru sem sagt ókeypis núna sem skiptir auðvitað miklu máli fyrir fólk. Sérstaða okkar er að fólk getur bókað tíma hjá okkur á netinu og það er engin biðröð þegar fólk mæti í skimun. Þú velur skimunarstað og bókar einfaldlega dag og tímasetningu sem hentar þér best á testcovid.is.“segir Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri AVIÖR, sem er svið innan Öryggismiðstöðvarinnar, og sér um rekstur skimunarstöðvanna.

„Það er mikil eftirspurn eftir hraðprófum og við heyrum að fjölmargir aðilar eru að fara af stað með stærri viðburði, t.d. busaböll í menntaskólum, árshátíðir, íþróttaleiki, tónleika og aðra menningarviðburði. Við getum þjónustað stóra hópa í einu og allir eiga sína tímabókun“ segir Ómar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum