fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

Tignarhækkun Önnu Sigrúnar fylgdi 165 þúsund króna launahækkun – Framkvæmdastjórar á LSH með nærri 2 milljónir á mánuði

Máni Snær Þorláksson, Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 25. ágúst 2021 18:55

Anna Sigrún Baldursdóttir er framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítalans. mynd/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Sigrún Baldursdóttir sem nýverið tók við stöðu framkvæmdastjóra skrifstofu forstjóra Landspítala er með 1.915.074 krónur í heildarlaun. Anna Sigrún var áður aðstoðarmaður forstjóra á spítalanum og þáði fyrir þá vinnu 1.750.048 krónur í heildarlaun. Fylgdi tignarhækkun Önnu því 165 þúsund króna launahækkun.

Tveir umsækjendur voru um stöðu framkvæmdastjóra skrifstofu forstjóra spítalans, sem er ný staða, en auk Önnu sótti Oddur Þórir Þórarinsson læknir og sjálfstætt starfandi lögmaður um starfið. Starfið var auglýst um miðjan maí á þessu ári. Mannauðsdeild spítalans annaðist gerð hæfniskrafa. Í valnefnd sátu forstjóri spítalans, framkvæmdastjóri mannauðsdeildar og Guðfinna Bjarnadóttir sem utanaðkomandi ráðgjafi.

Í svari spítalans um málið segir að árið 2019 hafi verið gerðar umfangsmiklar breytingar á skipuriti stofnunarinnar sem leiddu til þess að framkvæmdastjórastaðan varð til. Undir framkvæmdastjóra skrifstofu forstjóra spítalans heyrir nú verkefni sem áður heyrðu undir verkefnastjóra framkvæmdastjóra innviða, samskiptadeild, deild innri þjónustu, lögfræðideild auk Hringbrautarverkefnisins, sem er bygging nýs Landspítala við Hringbraut.

Samhliða breytingunum fækkaði framkvæmdastjórum deilda um einn og mun því launakostnaður lækka við breytingarnar, að því er segir í svari Landspítalans.

Í frétt Morgunblaðsins í dag sagði að kostnaður við rekstur skrifstofu spítalans hefði aukist um 115% á tíu árum og því haldið fram að kalt stríð ríki nú á milli stjórnenda spítalans og lækna. Páll Matthíasson svaraði höfundi fréttar Morgunblaðsins, Stefáni Einari Stefánssyni, fullum hálsi í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu Landspítalans og í viðtali á Bylgjunni í morgun.

DV fjallaði um deilu þeirra tveggja fyrr í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Úkraínsk sérsveit hefur eyðilagt rússnesk hergögn að verðmæti 660 milljarða

Úkraínsk sérsveit hefur eyðilagt rússnesk hergögn að verðmæti 660 milljarða
Fréttir
Í gær

Kostnaður við starfshópa Guðlaugs Þórs hljóp á hundruð milljónum króna – Flokksgæðingar á lista

Kostnaður við starfshópa Guðlaugs Þórs hljóp á hundruð milljónum króna – Flokksgæðingar á lista
Fréttir
Í gær

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“
Fréttir
Í gær

Össur telur að málþófið muni reynast Sjálfstæðismönnum dýrkeypt

Össur telur að málþófið muni reynast Sjálfstæðismönnum dýrkeypt
Fréttir
Í gær

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 
Fréttir
Í gær

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu