Í dagbók lögreglu er greint frá einkennilegum þjófnaði sem átti sér stað í Efra Breiðholti í nótt. Maður fór inn í verslun, og batt hundinn sinn fyrir utan verslunina. Þegar maðurinn kom út úr versluninni var hundurinn hvergi sjáanlegur.
Ung kona er grunuð um að stela hundinum, en fram kemur að hún hafi verið vistuð í fangageymslu lögreglu vegna rannsókn málsins.
Ekkert er gefið upp um afdrif sjálfs hundsins.
Lögregla vann að miklu fleiri málum í nótt, en ansi mörg þeirra vörðuðu umferðarlagabrot, og það um allt höfuðborgarsvæðið.