

Samkvæmt vefsíðunni forensicnews.net er eigandi vefsíðunnar Onlyfans ekki allur þar sem hann er séður. Leonid Radvinsky keypti Onlyfans í gegnum fyrirtæki sitt Fenix International í október 2018. Í lok árs 2019 höfðu tekjurnar sjöfaldast – og það áður en Covid-19 kom til sögunnar. Árið 2020 var hagnaður fyrirtækisins rétt innan við 38 milljarða íslenskra króna að sögn Tim Stokely framkvæmdastjóra Onlyfans.
Tim Stokely stofnaði OnlyFans 2016 og er enn forstjóri fyrirtækisins þrátt fyrir að hafa selt það til félags í eigu Radvinsky 2018. Með því að halda Tim um borð hefur raunverulegur eigandi haldið sig frá sviðsljósinu enda er nafn hans mun tengdara klámiðnaðnum en Stokley sem er breskur fyrrum bankamaður með instagram-aðgang sem myndi gera flesta áhrifavalda stolta.
Stokley er andlit fyrirtækisins út á við og almennt kemur raunverulegur eigandi, Radvinsky lítið upp í tengslum við Onlyfans. Almennt virðist „internetið“ halda því á lofti að Stokely sé enn eigandi síðunnar.
Fleiri kynlífssíður
Radvinsky er einnig eigandi MyFreeCams, klámsíðu sem byggir á að notendur selji aðgang að efni í gegnum vefmyndavélar. Síðan hefur skilað gríðarlegum tekjum og skapað honum nafn sem „stjarna“ í kynlífsiðnaðnum. Radinsky er heldur reglulega erindi á ráðstefnum sem tegjast kynlífsiðnaðnum og er vel þekkt nafn á slíkum samkomum.
View this post on Instagram
Forensicnews segir Radvinsky vera í kjör aðstæðum til þess að þvo peninga í gegnum fyrirtæki sín og að hann hafi ítrekað verið flaggaður í bandaríska bankakerfinu með svokölluð SAR skýrslum (Suspicious Activity Reports) sem tíunda óeðlilegar millifærslur félaga hans. Skýrslurnar sína margar, háar og óútskýrðar færslur á milli fyrirtækja Radvinskys og hans sjálfs sem virðast vera til þess fallnar að skapa óreiðu og fela uppruna fjármuna.
Í einni af skýrslunum kemur fram að kynlífsiðnaðurinn sé áhættuiðnaður hvað varðar peningaþvætti, illa meðferð á fólki og aðra ólöglega starfsemi. Það er meðal annars ástæða þess að margir bankar eru ekki hrifnir af því að taka á móti peningum frá fyrirtækjum líkt og eru í eigu Radvinsky.

Visa og Paypal segja nei
Pornhub.com er síða sem deilir klámefni og hefur ítrekað verið orðuð við mansal og barnaníð. Einstaklingar sem selja efni á öðrum síðum svo sem Onlyfans hafa lent í því að þeirra efni sé deilt á Pornhub án þeirra samþykkis né vitundar. Pornhub.com hefur ítrekað sætt ásökunum um að þar sé að finna efni sem ekki er gert með samþykki þeirra sem taka þátt.
Í kjölfar ásakana sem birtust 4. desember í New York Post hafa visa, mastercard og Paypal lokað fyrir greiðslur til síðunnar. Í slíkum tilfellum geta þeir sem selja efni á síðunum orðið fyrir töluverðum fjárhagsskaða.
Í grein frá 4. mars á vefsíðunni Vice.com er bent á að almennt séu bankar ekki hrifnir af peningastreymi sem komi frá síðum sem selji klám vegna þeirra áhættuþátta sem tengjast kynlífsiðnaðnum. Því sé ekki ólíklegt að Onlyfans sem og aðrar síður séu litnar hornauga í bankakerfinu og geti því ítrekað átt von á því að vera teknar til rannsóknar af hálfu banka.
Notendur MyFreeCam hafa haft hátt um að fyrirtækið eigi það til að frysta eða loka aðgöngum sem verði til þess að notendur getið ekki nálgast fé sitt. Á síðunni Trustpilot.com sem notuð er til þess að meta öryggi vefsíðna fær MFC 1,5 stjörnur af 5 og má þar lesa fjöldann allan af viðvörunum um hvernig síðan hefur fryst reikninga og notendur orðið fyrir miklu tekjutapi. Onlyfans er með 1,8 af 5 mögulegum á Trustpilot og yfir 1000 umsagnir.
Þar er fólk hvatt til þess að safna ekki háum fjárhæðum upp í gegnum síðuna heldur gæta þess að millifæra þær yfir á sína persónulegu reikninga sem oftast.