fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stillti símanum upp og tók myndband af barnungum stelpum skipta um föt

Heimir Hannesson
Mánudaginn 18. janúar 2021 11:30

Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann til þriggja mánaða fangelsisvistar, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir að hafa sært blygðunarsemi tveggja stúlkna, sýnt þeim ósiðlegt athæfi og fyrir barnaverndarlagabrot.

Mun maðurinn hafa stillt upp farsíma sínum að kvöldi föstudags 17. maí 2019 inni á baðherbergi á heimili sínu og tekið myndskeið af stelpunum þar sem þær voru naktar eða hálfnaktar að skipta um föt, að því er segir í dómnum.

Maðurinn játaði sök við meðferð málsins og segir í dómnum að hann hefur ekki hlotið dóm áður. Þá segir jafnframt í dómnum að litið verði til þess „hvað honum gekk til með brotinu“ og að það hafi beinst gegn tveimur ungum stúlkum við ákvörðun refsingar.

Forráðamenn stúlknanna gerðu kröfu um sitthvora milljónina í miskabætur og fulltrúi Héraðssaksóknara, sem sótt málið fyrir hönd ákæruvaldsins, krafðist þess að maðurinn yrði dæmdur til refsingar og að hann greiddi málskostnað.

Í ljósi játningar mannsins var maðurinn fundinn sekur um að hafa sært blygðunarsemi stelpnanna, en í hegningarlögum segir: „Hver sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna eða er til opinbers hneykslis skal sæta fangelsi allt að 4 árum, en fangelsi allt að 6 mánuðum eða sektum ef brot er smávægilegt.“ Þá varðaði það einnig við barnaverndarlög, en þar er tveggja ára fangelsisvist lögð við því að sýna barni „yfirgang, ruddalegt athæfi, særa það eða móðga.“

Maðurinn var því sem fyrr segir dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða stelpunum sitthvorar 300.000 krónurnar í miskabætur. Þá þarf hann að greiða málskostnað, samtals rétt rúm ein milljón króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart