fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Kári rekur smitsögu síðustu daga – Veiruprófun nær yfir 70% smitaðra

Erla Hlynsdóttir
Mánudaginn 29. júní 2020 12:52

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að eftir raðgreiningar á smituðum einstaklingum síðustu daga sé ljóst að knattspyrnukonan sem talin var ósmituð eftir skimun á Keflavíkurflugvelli kom sannarlega með veiruna í sér frá Bandaríkjunum.  Þetta kemur fram í ítarlegri færslu sem Kári ritar á Facebook þar sem hann rekur smitsögu síðustu daga.

Þá segir hann ljóst að veiruprófið sé ekki fullkomið en þó greinilegt að næmi þess sé töluvert yfir 70% og hafi prófanirnar dugað okkur Íslendingum  „til þess að hemja fyrsta kapítula faraldurins fljótar og betur en flestir.“

Færslu Kára má lesa hér í heild sinni:

Af skimun á landamærum: hvernig forsendur breyta ályktunum

1. Ung kona íslensk kom til landsins frá Bandaríkjunum þann 17. júní og fór í skimun eftir veirunni vondu, SARS-CoV-2, og reyndist neikvæð á prófinu; engin veira þar. Hún er fótboltakona og spilar eins og stendur fyrir Breiðablik og kom inn á í nokkrar mínútur í leik gegn KR sem var háður þann 18. júní. Þann 20. júní fór hún í fjölmenna útskriftarveislu. Þann 21. júní eyddi hún töluverðum tíma með vinkonu sinni. Síðan spilaði hún heilan leik með Breiðablik þann 23. júní og að kvöldi þess dags fékk hún þær fréttir að kona sem hún deildi húsnæði með í Bandaríkjunum hefði smitast af veirunni. Hún fór því í veirupróf síðla dags þann 24. júní og fékk þær fréttir að morgni þess 25. júní að hún væri sneisafull af veirunni. Í lok dagsins í dag (28. júní) hafði verið skimað eftir veirunni í sex hundrað manns sem höfðu verið í umhverfi hennar frá því hún kom til landsins, sótt útskriftarveisluna, spilað með henni fótbolta og svo framvegis. Í þessum hópi voru tveir með veiruna, vinkonan sem hún var með þann 21. júní og ungur fótboltamaður. Um það bil 300 manns voru settir í sóttkví og eru þar enn. Þetta leit út eins og smit sem hefði laumað sér inn í landið með konu sem var svo nýsmituð að veiran hafði ekki fengið tækifæri til þess að fjölga sér að því marki að hún fyndist. Hún hafi svo smitað vinkonu sína þann 21. júní og fótboltamanninn í útskriftarveislunni.

2. Þegar við ræddum við fótboltamanninn sagði hann okkur að hann hefði verið lasinn af hálsbólgu í heila viku áður en hann fór í útskriftarveisluna og hann hefði smitast af foreldrum sínum sem hefðu báðir verið lasnir af kvefi á undan honum. Hann kvaðst hafa þurran hósta og verk í berkjum. Á þessu augnabliki leit þetta út þannig að sá möguleiki væri fyrir hendi að fótboltakonan hefði smitast af fótboltamanninum sem hefði smitast af foreldrum sínum. Þessi möguleiki hlaut síðan töluverðan stuðning af því að faðir hans mældist með mótefni gegn SARS-CoV-2 sem móðir hans gerði hins vegar ekki. Það eru nefnilega engar líkur á því að sá sem er með mótefni gegn veirunni hafi ekki smitast af henni.

3. Þegar við tókum sögu af föðurnum sagðist hann að öllum líkindum hafa smitast þann 17. mars af nemanda sínum. Hann sat við hliðina á nemandanum sem hafði nokkru áður smitast af veirunni á frægri kóræfingu þar sem fjöldi manns smitaðist. Hann hefði verið illa lasinn í fjórar vikur og oft reynt að komast í skimun en ekki tekist. Við þessa vitneskju fóru böndin aftur að berast að Bandaríkjunum sem uppsprettu sýkingarinar.

4. Endanlegt svar fengum við svo með því að raðgreina veiruna úr öllum þremur smituðu einstaklingunum, fótboltakonunni, fótboltamanninum og vinkonunni. Það vill nefnilega svo til að veiran bætir á sig stökkbreytingum þegar hún flyst á milli einstaklinga og þótt stökkbreytingatíðni hennar sé ekki mikil er hún búin að smita í það minnsta 10 milljón manns í þessum heimi og því er úr nógu að velja. Stökkbreytingarnar raðast í mynstur sem verða hægt og hægt nokkuð einkennandi fyrir landsvæði. Veiran í öllum þremur er með sama mynstur og er það án nokkurs vafa frá Bandaríkjunum þannig að atburðarrásin var óyggjandi eftirfarandi: Fótboltakonan smitaðist í Bandaríkjunum og það er ljóst að hún smitaðist af sambýliskonunni en ekki sambýliskonan af henni vegna þess að fótboltakonan var með svo lítið magn af veirunni þegar hún kom til landsins að hún fannst ekki. Síðan fjölgaði veiran sér í nef-og munnholi hennar og hún varð smitandi og smitaði vinkonuna og fótboltamanninn. Nú erum við að leita að fleirum sem kynnu að hafa smitast af þeim þremur (einn fannst í dag 28. júní)

Ályktun: i. Það er ljóst að veiruprófið er ekki fullkomið og þessi saga opinberar einn af veikleikum þess sem er að mjög snemma í sýkingu, áður en veiran er búin að ná almennilega fótfestu, er erfitt að finna hana. Næmi prófsins er hins vegar töluvert meira en 70% og prófið dugði okkur til þess að hemja fyrsta kapítula faraldurins fljótar og betur en flestir.
ii. Skimun á landamærum minnkar hins vegar mjög líkurnar á því að smitandi einstaklingar komist inn í landið án þess að fara í einangrun. Við höfum til þessa náð þremur og misst einn þannig að af okkar takmörkuðu reynslu hefur skimunin fækkað tilfellum um 75%.
iii. Með því að taka góða sögu af sýktum einstaklingum og beita víðtækri skimun, smitrakningu, mótefnamælingu og raðgreiningu er hægt að sækja nokkuð nákvæman skilning á því sem er að gerast og bregðast við því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum