Fjörutíu og tveggja ára kona lést skömmu eftir að hún hafði verið útskrifuð af bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í síðustu viku. RÚV greinir frá.
Í skoðun er hvort álag á spítalanum hafi verið orsakavaldur í þessum harmleik.
Konan var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttöku á fimmtudaginn í síðustu viku og var hún talin hafa fengið blóðsýkingu. Hún var send heim í hjólastól nokkrum klukkustundum eftir komuna á bráðamóttökuna. Hún lést á föstudagsmorguninn.
Í svörum Landspítalans til RÚV kemur fram að ekki sé hægt að segja til um það á þessari stundu hvort álag á bráðamóttökunni vegna kórónufaraldursins hafi eitthvað haft með þetta að gera. Segir jafnframt að álag á bráðamóttökunni hafi verið með minna móti frá því COVID-19 faraldurinn hófst.