fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Ráðherra í fjölmennum gleðskap sem lögreglan stöðvaði í gærkvöldi – Brot á sóttvarnalögum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 24. desember 2020 07:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan var kölluð til vegna samkvæmis í útleigðum sal í miðborginni á ellefta tímanum í gærkvöldi. Veitingarekstur í flokki II er í salnum og því átti hann að vera lokaður á þessum tíma að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni. Enn fremur segir að 40 til 50 gestir hafi verið í salnum, „þar á meðal einn háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands“.

Lögreglan flokkar málið sem brot á reglum um lokun samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu og brot á reglum um fjöldasamkomu.

Í tilkynningu lögreglunnar segir að töluverð ölvun hafi verið í samkvæminu og flestir gestanna hafi haft áfengi við hönd. Enginn þeirra var með andlitsgrímur og segja lögreglumenn, sem voru á vettvangi, að nánast hvergi hafi fjarlægðarmörk verið virt. Þeir sáu aðeins þrjá sprittbrúsa í salnum.

Lögreglumenn ræddu við ábyrgðarmenn skemmtunarinnar og var þeim gerð grein fyrir að skýrsla yrði rituð um málið. Gestunum var vísað út. Flestir þeirra settu upp andlitsgrímu áður en þeir gengu út. Sumir kvöddu með faðmlögum og enn aðrir með kossum. „Einn gestanna var ósáttur með afskipti lögreglu og líkti okkur við nasista,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Í gær

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“
Fréttir
Í gær

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“

Yfirmenn miðasölufyrirtækis gerðu grín að kaupendum sínum – „Þetta fólk er svo heimskt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon