fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Fréttir

Fjögurra milljarða erlend fjárfesting í stækkun líftæknifyrirtækisins Algalífs

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 21. desember 2020 16:41

Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ákveðið hefur verið að rúmlega þrefalda framleiðslu á astaxanthíni hjá líftæknifyrirtækinu Algalíf í Reykjanesbæ með því að stækka verksmiðju fyrirtækisins um rúmlega helming. Hafist verður handa strax í upphafi næsta árs og rúmlega 100 störf munu skapast á framkvæmdatímanum fram til 2022.

Byggðir verða um 7.000 m² og húsnæðið fer því úr 5.500 m² í um 12.500 m². Ársframleiðslan fer úr rúmum 1.500 kg af hreinu astaxanthíni í rúm 5.000 kg.
Erlend fjárfesting vegna verkefnisins nemur um fjórum milljörðum króna. „Ársveltan mun nærri fjórfaldast eftir stækkun og fara úr einum og hálfum milljarði króna í um fimm og hálfan milljarð“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Sérhæft og vel menntað starfsfólk heldur framleiðslukostnaði Algalífs í skefjum með nýsköpun og nýtingu hátæknilausna á öllum stigum. Því er náttúrulegt astaxanthín frá Algalíf mjög vel samkeppnishæft á alþjóðamarkaði og sala gengur mun betur en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.

„Öll framleiðsla þessa árs er löngu seld og bróðurpartur framleiðslu næsta árs líka. Markaðshorfur eru mjög góðar og fjögurra milljarða erlend fjárfesting sýnir trú á því sem við erum að gera“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Öll framleiðsla Algalífs á örþörungum fer fram í stýrðu umhverfi innanhúss með umhverfisvænum orkugjöfum, eru bæði magn og gæði stöðug. Úr þörungunum er unnið fæðubótaefnið astaxantín. Algalíf hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi. Framleiðsla Algalífs á astaxanthíni úr örþörungum er umhverfisvæn og ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í ferlinu. Notast er við sérstök LED ljós og tölvustýrð ljósa- og hitakerfi við ræktun örþörunganna í lokuðum rörakerfum sem þýðir að vatns-, raforku- og landnotkun er í lágmarki. Binding á koltvísýringi er 80 tonn á ári en vrður 250 tonn á ári og kolefnisfótsporið neikvætt sem því
nemur. Náttúrlegt astaxanthin frá Algalíf er alþjóðlega vottað af Non-GMO Project.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni

Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Opinbera dánarorsök Rob Reiner og eiginkonu hans

Opinbera dánarorsök Rob Reiner og eiginkonu hans
Fréttir
Í gær

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar

Móðir ófeðraðs barns forvitnaðist um réttindi sín en fékk rangar upplýsingar – Uppgötvaði hið rétta 14 árum síðar
Fréttir
Í gær

Lenti í óvæntu veseni eftir setu í stjórn foreldrafélags með háttsettum einstaklingi

Lenti í óvæntu veseni eftir setu í stjórn foreldrafélags með háttsettum einstaklingi
Fréttir
Í gær

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar
Fréttir
Í gær

Mannslát á Kársnesi: Lögregla óskar eftir aðstoð almennings

Mannslát á Kársnesi: Lögregla óskar eftir aðstoð almennings