fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
Fréttir

Loka orlofshúsunum fyrir vetrarfríið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 21. október 2020 17:33

Eitt af orlofshúsum BHM. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orlofssjóður BHM hefur ákveðið að loka öllum orlofshúsum sínum frá með fimmtudeginum 22. október og til og með 26. október. Þetta eru nákvæmlega dagarnir þegar vetrarfrí verður í flestum grunnskólum höfuðborgarsvæðisins. Mælt hefur verið gegn því að fjölskyldur noti fríið til ferðalaga út á land vegna smithættu. Svo virðist sem orlofssjóðurinn sé að svara þessu ákalli Almannavarna með því að einfaldlega skella orlofshúsum sínum í lás þá daga sem vetrarfríið stendur yfir. Raunar kemur það fram í tilkynningu sjóðsins.

Á heimasíðu Orlofssjóðs BHM segir:

„Stjórn Orlofssjóðs BHM hefur ákveðið að loka öllum orlofshúsum sjóðsins frá og með fimmtudeginum 22. október til og með mánudeginum 26. október vegna COVID-19 faraldursins. Sjóðfélagar sem áttu orlofshús bókað á þessum tíma munu fá endurgreitt sjálfkrafa og þurfa ekki að bera sig eftir því sérstaklega.

Almannavarnir og heilbrigðisyfirvöld hafa beint þeim tilmælum til fólks að ferðast ekki að óþörfu út fyrir höfuðborgarsvæðið, heldur halda kyrru fyrir heima hjá sér.

Með ákvörðun sinni vill stjórn Orlofssjóðs BHM leggjast á árarnar með yfirvöldum í baráttunni gegn útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

Sjóðfélagar geta afbókað orlofskosti sem þeir hafa á leigu yfir tímabilið 20. október til og með 3. nóvember með sólarhrings fyrirvara og fá þá endurgreitt að fullu.

Afbókunarbeiðnir skulu sendar á sjodir@bhm.is“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrirhugað að Gufunesmálið fari fyrir Landsrétt í febrúar

Fyrirhugað að Gufunesmálið fari fyrir Landsrétt í febrúar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Í gær

Segir þjóðina með þeim í liði eftir harmleikinn í Suður-Afríku – „Hjartað mitt er hjá Maríu 24-7“

Segir þjóðina með þeim í liði eftir harmleikinn í Suður-Afríku – „Hjartað mitt er hjá Maríu 24-7“
Fréttir
Í gær

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“
Fréttir
Í gær

Sneru vörn í sókn gegn leigubílstjóranum sem ofrukkaði þær og skildi svo eftir í myrkrinu á Bláfjallavegi

Sneru vörn í sókn gegn leigubílstjóranum sem ofrukkaði þær og skildi svo eftir í myrkrinu á Bláfjallavegi
Fréttir
Í gær

Stúlka sýknuð af ákæru um að hafa stungið pilt tvisvar í bakið – Var aðeins 15 ára þegar meint brot átti sér stað

Stúlka sýknuð af ákæru um að hafa stungið pilt tvisvar í bakið – Var aðeins 15 ára þegar meint brot átti sér stað