fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Fréttir

„Ég veit ekki hvar þessi martröð endar“ – Tvö áföll á skömmum tíma og langur sakaferill

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. janúar 2020 09:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Freyr Magnússon, sem grunaður er um að hafa orðið sambýlismanni móður sinnar að bana í hverfinu Los Balcones á Torrevieja á Spáni í vikunni, var leiddur fyrir dómara í vikunni og bíður gæsluvarðhalds.

Frá 16 ára aldri hefur Guðmundur minnst átta sinnum verið dæmdur til refsivistar fyrir hegningarlagabrot, fíkniefnabrot, tollalagabrot, lyfsölulagabrot og skotvopnalagabrot.

Þann 19. desember 2007 var Guðmundur Freyr dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa kveikt í parhúsi á Þorlákshöfn. Kona og tvö börn voru sofandi í hinum hluta parhússins þegar Guðmundur lagði eld að húsinu. Í sama dómi var Guðmundur Freyr dæmdur fyrir rán vopnaður hnífi, fjársvik, ölvunarakstur og vörslu fíkniefna.

Mynd: Facebook

Sviptur ökurétti ævilangt

Í júní 2012 var Guðmundur dæmdur í 21 mánaðar fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra, fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Guðmundur fannst með rúmlega tvö grömm af kannabis í bíl sínum þegar hann var stöðvaður á Akureyri. Tveimur mánuðum fyrr hafði hann ekið sömu bifreið, sviptur ökuréttindum frá Akureyri til Siglufjarðar.

Þegar hann varð var við lögreglu gaf hann í og keyrði á ofsahraða, allt að 163 kílómetrum á klukkustund, í gegnum Múla- og Héðinsfjarðargöng. Guðmundur játaði brot sín og reyndi þá að vinna bug á fíkniefnamisnotkun sinni. Því þótti fært að skilorðsbinda svo stóran hlua refsingarinnar. Hann var sviptur ökurétti ævilangt og greiðir 45 þúsund króna sekt til ríkissjóðs.

Þorvaldur lést þann 11. desember 2017.

Tvö áföll á skömmum tíma

Óhætt er að segja að síðustu ár hafi verið skelfileg fyrir Kristínu Guðmundsdóttur, móður Guðmundar. Í desember 2017 missti hún annan son sinn, Þorvald að nafni, á grunsamlegan hátt. Hefur Kristín áður sagt opinberlega að hún telji líklegt að hann hafi verið myrtur í Fossvogsdal.

Kristín hefur máli sínu til stuðnings bent á að á líkinu hafi verið áverkar og Þorvaldur sætt hótunum dagana fyrir andlátið. Hún segir að krufningarskýrsla sé tilbúin en henni hafi ekki gefist tækifæri til að skoða hana nánar þar sem annað áfall hafi riðið yfir.

Kristín dró enga dul á að Þorvaldur hafi verið í neyslu en benti jafnframt á að það sé ekki hægt að afskrifa andlát hans vegna þess. Hann hafi þó verið heilsuhraustur og ekki kennt sér meins þegar hún var með honum degi áður en hann lést. „Ég hef alltaf sagt að hann hafi verið drepinn. Ég fer ekki ofan af því,“ sagði Kristín í samtali við DV á sínum tíma.

Nokkrum mánuðum síðar lenti hún í alvarlegu slysi á Spáni ásamt Guðmundi Frey og þremur öðrum Íslendingum, þar á meðal vinkonu sinni. Þau Guðmundur, Kristín og vinkona hennar slösuðust einna mest. Fyrst um sinn virtist sem Guðmundur væri lamaður fyrir lífstíð. Svo reyndist ekki vera en hann hlaut þó alvarlega áverka á taugum og mænu.

Kristín tognaði sjálf illa í baki í slysinu og sagði á sínum tíma: „Ég veit ekki hvar þessi martröð endar.“

Engin ósætti fyrir

Í spænskum fjölmiðlum hefur nýlega verið greint frá því að til átaka hafi komið milli Guðmundar og sambýlismanns móður hans en komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að Guðmundur hafi hrint manninum á glugga. Samkvæmt heimildum DV leikur hins vegar mikilli vafi á því að um átök hafi verið að ræða heldur hafi Guðmundur Freyr mögulega ráðist á manninn sem ekki hafi haft bolmagn til að verja sig.

Hlaut maðurinn skurði af glerbrotum og varð fyrir það miklum blóðmissi að hann lést. Einnig hefur komið fram í erlendum fjölmiðlum að stungusár hafi fundist á hinum látna sem ekki verði rakin til glerbrotanna úr rúðunni.

Þegar DV hafði samband við Kristínu á dögunum vildi hún meina að framferði Guðmundar þetta kvöldið hafi eingöngu sprottið af þörf fyrir peninga fyrir skammti af fíkniefnum. „Hann var bara að reyna að ná sér í eiturlyf. Hann var stútfullur af alls konar eitri sem gerði hann brjálaðan,“ sagði hún.

Samkvæmt heimildum DV var ekki ósætti á milli Guðmundar og Kristínar þegar hann réðst á sambýlismann hennar, sem talið er að Guðmundur hafi ekki þekkt. Þá séu fáleikar á milli barna hins látna og móðurinnar.

Los Balcones-hverfið í Torrevieja á Spáni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nova flytur á Broadway

Nova flytur á Broadway
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt kaupréttakerfi nær til alls starfsfólks Nova

Nýtt kaupréttakerfi nær til alls starfsfólks Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingverðir sagðir hafa varnað því að fólk myndi gægjast inn um glugga – „Þetta þótti nokkuð óvenjuleg ráðstöfun“

Þingverðir sagðir hafa varnað því að fólk myndi gægjast inn um glugga – „Þetta þótti nokkuð óvenjuleg ráðstöfun“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna