Björgunarsveitirnar hafa bjargað konunni sem var í sjálfheldu á Vífilsfelli. Konan var í fjallgöngu þegar skyndilega fyrsti og aðstæður breyttust. Samkvæmt björgunarsveitunum brást konan hárrétt við, hafði umsvifalaust samband við 112. Frá þessu er greint í færslu á Facebook-síðu Landsbjargar þar sem segir að björgunin hafi gengið vel:
„Vel gekk að finna hana, tryggja öryggi hennar og fylgja henni niður.“
Með færslunni fylgdi myndband af aðstæðum sem sýnir björgunarsveit að störfum.