fbpx
Þriðjudagur 28.október 2025
Fréttir

Segir Kára fara í manninn frekar en boltann – „Eru þetta fordómar gagnvart konum?“

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 5. september 2020 10:35

Samsett mynd - Jón ívar og Kári

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðtal við Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, birtist í Fréttablaðinu í morgun. Þar tjáði hann sig um margt og mikið til að mynda heimsfaraldurinn og Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, en þeir tveir hafa eldað grátt silfur undanfarna daga.

Í gær gagnrýndi Kári hann Jón fyrir að vilja taka upp heimkomusmitgát við landamærin. Þá virtist Kári líta á Jón sem loddara, en pistill hans hét „Opið bréf til Garðars Hólm“. Garðar Hólm er líkt og margir vita persóna úr skáldsögu Halldórs Laxness Brekkukotsannál.

Jón Ívar virðist vera á þeirri skoðun að í pistli sínum hafi Kári verið heldur ómálefnalegur.

„Kári Stefánsson skrifar mér opið bréf þar sem hann virðist því miður fara meira í manninn en boltann. Staðreyndin er sú að lífið mun ekki færast að fullu í venjulegt horf fyrr en faraldurinn er um garð genginn, því veiran kemst alltaf inn í landið aftur. Við þurfum því að halda áfram ákveðinni smitgát innanlands en þó leitast við að koma lífinu í sem eðlilegast horf. Skimun á landamærum er af hinu góða. Henni á að halda áfram. Kári fullyrðir að það sé „stórhættulegt“ að skipta í heimkomusmitgát en það er ekki byggt á rökum. Bæði heimkomusmitgát og sóttkví eru eftirlitslaus fyrirbæri. Fólk svindlar á báðu,“

Jón Ívar veltir fyrir sér orðanotkun Kára, sem að benti sérstaklega á að hann væri kvensjúkdómalæknir. Jón bendir á að hann sé með fleiri gráður og próf en það og spyr sig hvort að Kári sé með fordóma gagnvart konum.

„Þá hefur sumum fundist undarlegt að kvensjúkdómalæknir sé að tjá sig um þessi mál, en ég er líka með meistaragráðu í lýðheilsufræði frá Harvard og doktorsgráðu frá HÍ og hef verið á kafi í vísindastarfi í mörg ár. Ég er því frekar að tala út frá þeirri reynslu og sjónarhorni og velti vöngum yfir því hvaðan þessi gagnrýni kemur. Eru þetta fordómar gagnvart konum? Væri hún hin sama ef ég væri hjartalæknir?“

Hér má lesa viðtalið við Jón Ívar í Fréttablaðinu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

FESTI aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu

FESTI aðalstyrktaraðili Félags kvenna í atvinnulífinu
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Stefán Máni segir frá tálbeitunni sem fylgt hefur honum í 17 ár – „Ég opnaði bara einhverjar dyr og Hörður gekk inn um þær“

Stefán Máni segir frá tálbeitunni sem fylgt hefur honum í 17 ár – „Ég opnaði bara einhverjar dyr og Hörður gekk inn um þær“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Einar segir stöðuna að teiknast upp á verri veg – Lítið skyggni á Reykjanesbraut

Einar segir stöðuna að teiknast upp á verri veg – Lítið skyggni á Reykjanesbraut
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Lögregla vísar fólki úr röðum við hjólbarðaverkstæði – Vanbúnir bílar fjarlægðir með dráttarbílum

Lögregla vísar fólki úr röðum við hjólbarðaverkstæði – Vanbúnir bílar fjarlægðir með dráttarbílum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Lögregla með áríðandi tilkynningu – Mjög slæm færð á höfuðborgarsvæðinu

Lögregla með áríðandi tilkynningu – Mjög slæm færð á höfuðborgarsvæðinu
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Bætir í snjókomuna í dag – Gul viðvörun í gildi

Bætir í snjókomuna í dag – Gul viðvörun í gildi