fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

Meintur brennuvargur áfram í gæsluvarðhaldi – Lögreglan segir hætta á að maðurinn flýi land

Heimir Hannesson
Þriðjudaginn 11. ágúst 2020 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag mann á sjötugsaldri í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli b. liðar 1. málsgreinar 95. gr. sakamálalaga, að því er segir í tilkynningu lögreglu. Lagagreinin hljómar svo:

b. að ætla megi að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar.

Þessi b-liður er ein fjögurra ástæðna sem dæma má menn í gæsluvarðhald. Hinar eru rannsóknarhagsmunir, vegna síendurtekinna afbrota eða til að vernda brotaþola. Athygli vekur að léttvægari útfærsla á þessu sama markmiði laga væri að úrskurða mann í farbann. Það að dómstóll úrskurði mann í gæsluvarðhald en ekki farbann hlýtur því að þýða, samkvæmt viðmælanda DV, að lögregla hafi þeim mun sannfærandi rök fyrir sínu máli og að sönnunargögn bendi ótvírætt til sektar viðkomandi. Þá má enn fremur gera ráð fyrir því að farbann hafi ekki þótt nægilega þung ráðstöfun.

Maðurinn hefur setið óslitið í gæsluvarðhaldi frá brunanum sem varð fyrir um sjö vikum síðan. Engar upplýsingar hafa fengist uppgefnar hjá lögreglunni um framgang rannsóknarinnar annað en að hún sé í gangi og „miðar vel.“ Lögreglan hefur þó staðfest að hún óttist að maðurinn flýi land og að „farið sé fram á gæsluvarðhald á þeim grunni að talin sé hætta á að hann reyni að fara úr landi gangi hann laus,“ að sögn lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þrír létust í eldsvoðanum sem maðurinn er sagður hafa kveikt og húsið gjöreyðilagðist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

17 ára piltur áfrýjar ekki dómi fyrir að bana Bryndísi Klöru

17 ára piltur áfrýjar ekki dómi fyrir að bana Bryndísi Klöru
Fréttir
Í gær

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“
Fréttir
Í gær

Alvarleg staða á Landspítalanum – Ófaglærðir halda starfseminni gangandi þegar kemur að hjúkrun og umönnun

Alvarleg staða á Landspítalanum – Ófaglærðir halda starfseminni gangandi þegar kemur að hjúkrun og umönnun
Fréttir
Í gær

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst