fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Fréttir

Erfið staða á fiskmörkuðum og veiðar dragast saman

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 27. mars 2020 08:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fiskveiðar eru farnar að dragast saman vegna COVID-19 heimsfaraldursins því markaðir fyrir ferskan fisk eru nær algjörlega lokaðir þessa dagana.

„Við getum sagt að 99 prósent af markaðinum fyrir ferskan fisk sé lokaður. Við höfum verið að bregðast við þessu með því að vinna í frystar afurðir og dregið úr í sókn í þorsk, sem fór að stórum hluta í ferskar afurðir áður.“

Hefur Fréttablaðið eftir Ægi Pál Friðbertssyni, framkvæmdastjóra Brims, í umfjöllun um málið í dag.  Hann sagði einnig að málin séu unnin dag frá degi. Nú hafi breski markaðurinn lokast í viku en það er mjög mikilvægur markaður. Það sama á við um franska markaðinn.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, sagði að mikil óvissa sé ríkjandi og miklar breytingar eigi sér stað. Samherji hefur að hans sögn dregið úr veiðum en reynt verði að uppfylla þær þarfir sem eru til staðar, meðal annars með því að sækja í aukategundir og frysta fisk.

Lokun markaða kemur á sama tíma og skipin voru farin að veiða vel eftir erfiðan vetur en tíðarfar hefur verið mjög erfitt í vetur.

„Veturinn er búinn að vera ein ótíð. En veiðin hjá okkur hefur verið ótrúlega góð miðað við það“

Sagði Björgólfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist
Fréttir
Í gær

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“
Fréttir
Í gær

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“
Fréttir
Í gær

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“
Fréttir
Í gær

Furðar sig á því að geta fengið íslenskt vodka á lægra verði í Bandaríkjunum en í Fríhöfninni

Furðar sig á því að geta fengið íslenskt vodka á lægra verði í Bandaríkjunum en í Fríhöfninni
Fréttir
Í gær

„Ég er með fullt af skoðunum sem stangast á við skoðanir þessa gaurs“

„Ég er með fullt af skoðunum sem stangast á við skoðanir þessa gaurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu

Skagfirðingar óttast að tapa á sparnaðaráformum Ingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið