fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Fréttir

Lýsa yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. febrúar 2020 10:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt Veðurstofunni hefur verið mjög hvasst síðan snemma í morgun og skafrenninur til fjalla frá því í gær. Búast má við því að snjóflóðahætta geti skapast í þessu veðri þar sem snjór safnast í fjöll en ekki er talin hætta í byggð eins og er.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Í henni segir að áfram verði hvasst og hríðarveður fram yfir miðnætti á Norðurlandi og Vestfjörðum en þá dregur úr vindi og úrkomu. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist grannt með þessum aðstæðum í samráði við almannavarnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ragnar H. Hall hættur í lögmennsku

Ragnar H. Hall hættur í lögmennsku
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Birgir tekur tímabundið við af Jóni Viðari sem slökkviliðsstjóri

Birgir tekur tímabundið við af Jóni Viðari sem slökkviliðsstjóri
Fréttir
Í gær

„Ég reikna með að sumt komi fólki á óvart“

„Ég reikna með að sumt komi fólki á óvart“
Fréttir
Í gær

Þorbjörg hættir hjá Samtökunum ‘78 aftur – „Finn að það er kominn tími á breytingar“

Þorbjörg hættir hjá Samtökunum ‘78 aftur – „Finn að það er kominn tími á breytingar“