fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fréttir

Valgerður er hætt að sofa á nóttunni – „Þau höfðu því miður rétt fyrir sér” – Segir ríkisstjórnina ekki gera nóg

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. janúar 2020 11:33

„Ég hef gert allt sem ég get til að snúa við þessari grein við“

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég skrifa þennan pistil því ég er hætt að sofa á nóttunni,“ segir Valgerður Árnadóttir, umhverfisverndarsinni og Pírati, en pistill hennar um kapítalisma og umhverfismál birtist á Vísi í morgun.

„Þar sem ég sef ekki vegna þess að ég hugsa svo mikið um hversu lítils megnuð ég er gagnvart vandamálum heimsins þá get ég alveg eins skrifað niður það sem ég er að hugsa og vonað að það hafi einhver áhrif,“ segir Valgerður og vitnar því í Gretu Thunberg.  „Ég vil að þið bregðist við eins og það sé kviknað í húsinu ykkar, vegna þess að það er það!” Valgerður segir hana hafa rétt fyrir sér.

„Það er kviknað í húsinu okkar, þó að Ástralía og regnskógar Amazon og Afríku séu langt í burtu þá eru þau samt í “húsinu okkar”, á sömu jörð, og eldarnir þar koma okkur sannarlega við. Náttúra og dýralíf, heilu vistkerfin sem eru brunnin hefur áhrif á líf okkar allra og það til frambúðar, það er ekki aftur snúið fyrir hundruðir dýrategunda sem eru útdauð og fyrir þúsunda ára gróður og tré sem eru horfin. „500 milljón dýra hafa drepist í eldunum!”,- svona birtust tölurnar okkur fyrir nokkrum dögum, tölum sem nú hafa hækkað í tæplega þúsund milljónir. Fyrir nokkrum dögum hafði því sem samsvarað hálfu Íslandi brunnið, í dag var það komið í 80% af stærð Íslands, en á morgun?“

Hún  segir ráðamenn um allan heim hafa brugðist okkur. „Meira að segja í Ástralíu, í skíðlogandi húsinu standa menn og segja “Þetta er ekki hamfarahlýnun af mannavöldum um að kenna!” Jafnvel í miðjum eldinum afneita menn eldinum.“

„Vestræn manneskja borðar margfalt meira af kjöti og mjólkurvörum en áður var gert“

Valgerður segir dýrin hafa vitað það þegar mannskeppnan lærði að kveikja eld að nú væri illa fyrir þeim komið. „Þau höfðu því miður rétt fyrir sér,“ segir hún. „Með allt okkar vit, yfirburði og völd hefur okkur tekist að eyðileggja og menga meira á jörðinni á 200 árum en öll árþúsundin þar á undan. Til hvers er þetta vit ef við gerum ekkert gott með það?“

Hún vill trúa því að fólk sé að mestu leyti gott. „Kannski er það barnsleg trú því í samanburði við þessar tölur yfir dýr sem hafa dáið í eldunum þá tekur okkur einungis 2 daga að drepa sama magn í sláturhúsum. 250 milljónir dýra er slátrað á hverjum degi og það gerum við viljandi og meirihluti fólks þykir það bara í góðu lagi.“

Valgerður segir að margir vilji meina að þetta sé bara „hringrás náttúrunnar“ en hún vill meina að það sé hins vegar ekki rétt. „Verksmiðjuframleiðsla og markaðsetning kjöt- og mjólkuriðnaðarins síðustu 100 ár hefur leitt til þess að vestræn manneskja borðar margfalt meira af kjöti og mjólkurvörum en áður var gert og mikið meira en hollt getur talist,“ segir hún. „Jafnvel þó lífsstílssjúkdómar séu stærsta heilsufarsvandamál okkar og kostar heilbrigðiskerfin billjónir árlega. Jafnvel þó framleiðsla dýraafurða sé annar stærsti þáttur í losun gróðurhúsaloftegunda, stærsta orsök eyðileggingar skóga, votlendis og vistkerfa er fólk í afneitun á eigin neyslu og neitar að horfast í augu við vandann.“

„Hvaða glataði og innantómi raunveruleiki er það?“

„Löngum hefur þótt tabú og öfgafullt að kenna kapítalíska kerfinu um þessa þróun,“ segir Valgerður en margir vilja meina að vandamál heimsins stafi einmitt af græðgi kapítalismans. Hún segir að ef fólk svo mikið sem gagnrýnir kapítalismann þá er það kallað kommúnisti og öfgamanneskja.

„En það liggur frekar beint við að kerfi sem snýst um að hámarka hagnað, á kostnað alls annars, á kostnað mannréttinda, náttúru og dýra er um að kenna. Að kerfi sem snýst um að framleiða og selja miklu meira en nokkur þarf bara til að selja það er eyðileggingarmaskína. Kerfi sem níðist á þeim fátæku sem aldrei komast úr vítahring þrælavinnu og lætur öllum líða illa ef það á ekki nýjasta símann eða flottasta bílinn. Kerfi sem lætur okkur gleyma því hver við erum, að við erum í raun partur af náttúru, af hringrás sem við þurfum að bera virðingu fyrir því án hennar lifum við ekki af. Við lifum vel af án síma, bíls og snjallúrs en samt er það orðið okkar markmið í lífinu að eignast það, sjáið bara geislabaug fyrirsætunnar í Kringlu-auglýsingunni fyrir jólin, geislabaugur úr snjallsímum. Hún endurspeglar raunveruleika okkar. Hvaða glataði og innantómi raunveruleiki er það?“

„Notum þetta vit okkar nú einu sinni til góðs“

Valgerður segir kapítalismann í núverandi mynd ekki vera kerfi sem styður vistkerfi jarðar og hringrás náttúrunnar. „Í ágúst síðastliðnum tókum við í Pírötum undir með helstu náttúruverndarsamtökum landsins að lýsa ætti fyrir neyðarástandi í loftslagsmálum og skuld­binda [Ísland] sem þjóð til að sýna al­vöru ábyrgð,“ segir hún.

„En síðan hefur ekkert gerst og það sást bersýnilega í Kryddsíldinni á gamlársdag þegar formenn ríkisstjórnarflokkana voru spurðir út í hvað þeir ætla að gera varðandi þennan vanda að þau ætla ekki að aðhafast neitt frekar en þau nú þegar hafa gert, “við erum nefnilega að gera meira en sumir aðrir“. En það þýðir ekki að við séum að gera nóg!“

Hún botnar pistilinn með því að biðla til fólks að vakna og breyta hlutunum. „Við þurfum að vakna úr værum blundi núna. Gerum okkur grein fyrir því að það sem brennur núna er úrelt kerfi, slökkvum þessa elda og byggjum upp nýtt kerfi, kerfi sem setur náttúruna, undirstöðu alls lífs í fyrsta sæti. Lýsum yfir neyðarástandi, komum á nýrri stjórnarskrá og setjum alvöru aðgerðaáætun í gang! Notum þetta vit okkar nú einu sinni til góðs.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik