fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Fréttir

Þrír létust í flugslysinu í Fljótshlíð

Ritstjórn DV
Mánudaginn 10. júní 2019 08:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír létust og tveir eru alvarlega slasaðir eftir að einkaflugvél skall til jarðar við Múlakot í Fljótshlíð um klukkan 20.30 í gærkvöldi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurlandi.

Líðan þeirra slösuðu er stöðug. Rannsókn á tildrögum slyssins er í gangi og ekki verður unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Lögreglunni barst tilkynning um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð rétt eftir hálf níu í gærkvöldi. Eldur var þá laus í flugvélinni en fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga HSU, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar fóru á staðinn.

Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt hefur viðbragsteymi Rauðakross Íslands verið sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ætla ekki að selja 230 ára ættaróðalið fyrir skammtímagróða einnar kynslóðar

Ætla ekki að selja 230 ára ættaróðalið fyrir skammtímagróða einnar kynslóðar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kári ósáttur og segir Morgunblaðið vísvitandi afvegaleiða lesendur – „Eins slæm blaðamennska og hugsast getur“

Kári ósáttur og segir Morgunblaðið vísvitandi afvegaleiða lesendur – „Eins slæm blaðamennska og hugsast getur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hryllir við tilhugsuninni um að Grænland verði eins og Ísland – „Ekki gera sömu mistök“

Hryllir við tilhugsuninni um að Grænland verði eins og Ísland – „Ekki gera sömu mistök“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Davíð lenti í vandræðum vegna bíóferðar, þorrablóts og leiks Íslands og Danmerkur

Sigmundur Davíð lenti í vandræðum vegna bíóferðar, þorrablóts og leiks Íslands og Danmerkur