Robert Lewandowski hefur lengi verið talinn einn öflugasti framherji heims en hann leikur með Bayern Munchen.
Lewandowski samdi við Bayern árið 2014 en hann hafði fyrir það leikið með Borussia Dortmund við góðan orðstír.
Mörg félög erlendis hafa reynt að næla í leikmanninn sem hefur þó alltaf hafnað því að fara.
Lið á Englandi og í Frakklandi hafa aldrei átt möguleika á að fá Lewandowski segir umboðsmaður hans, Cesary Kucharski.
,,Hann hefur fengið mörg tilboð. Málið er að eiginkona hans vildi ekki fara til Frakklands og þau bæði vildu ekki fara til Englands,“ sagði Kucharski.
,,Fyrir Robert þá kom spænska sólin aðeins til greina og eina liðið sem kom til greina var Real Madrid.“