fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Hugi minnist ömmu sinnar: Gengur þrjú þúsund kílómetra í kringum landið með hjólbörur

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 5. júní 2019 13:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef ég geng með hjólbörurnar eins og ég sé að hella úr þeim, þá fæ ég ekki verki í axlirnar,“ segir Hugi Garðarsson, 21 árs, sem ætlar að ganga hringinn í kringum landið til styrktar Krabbameinsfélaginu í sumar.

Í tilkynningu sem Krabbameinsfélagið sendi frá sér kemur fram að Hugi geri ráð fyrir að vera um 100 daga á leiðinni, heimsækja 70 sveitarfélög og ganga 3.000-3.500 kílómetra. Hann gengur með allt sitt dót í hjólbörum sem hann hefur búið hliðarspeglum og þverstöng til að auðvelda gönguna á þjóðvegum landsins.

Í tilkynningunni segir að Hugi hafi áður starfað um tveggja ára skeið sem landvörður á Þingvöllum og síðustu þrjá mánuði í Skaftafelli. Hann hefur áður gengið hringinn í kringum landið, en fjárfesti í hjólbörum á Akureyri og gekk með þær til Reykjavíkur.

„Það er miklu auðveldara að labba með hjólbörur ef maður lyftir þeim upp og allur þunginn hvílir á dekkinu. Með hjólbörum næ ég léttilega að ganga allt að 35 kílómetra á dag, en án þeirra eru það aðeins 20-25 kílómetrar.“

Hjólbörur geta augljóslega verið til margra hluta nytsamlegar en í tilfelli Huga geymir hann þar allt sem hann þarf til ferðalagsins; tjald, svefnoka, matarbirgðir, bækur og gítar sem hann spilar á daglega.

Hugi segist oft vekja athygli með hjólbörurnar og alltaf sé einhver sem hægi á sér til að taka mynd, þótt hann hvetji fólk ekki til að hægja mikið á sér og skapa þannig hættu í umferðinni á þjóðvegum landsins.

Hugi gengur af stað frá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð í dag klukkan 14 til minningar um ömmu sína sem lést úr krabbameini árið 2014: „Lát hennar var okkur fjölskyldunni afar þungbært, sérstaklega afa mínum. Ég ætla að fara hringinn réttsælis, heimsækja um 70 bæjarfélög  og hlakka til að kynnast landinu á göngunni um leið og ég legg góðum málstað lið,“ segir Hugi að lokum og hvetur alla til að hringja í söfnunarsímann því flestir þekki einhvern sem hefur kljást við krabbamein.

Söfnunarsími 908-1001 fyrir 1.000 kr.

Hugi verður einn á ferð og hægt er að fylgjast með ferðum hans á facebook síðu göngunnar.

göngunnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Þórdís Kolbrún sár út í Ragnar: „Ákaflega ógagnlegt og ámælisvert”

Þórdís Kolbrún sár út í Ragnar: „Ákaflega ógagnlegt og ámælisvert”
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann