fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fókus

Leikarinn fagnar bráðum 100 ára afmæli og segir að lykilinn að langlífi sé að forðast þetta tvennt

Fókus
Laugardaginn 29. nóvember 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Dick Van Dyke verður 100 ára í desember. Hann segir nú í viðtali að hann hafi í gegnum lífið forðast reiði og hatur en hann telur það hafa spilað stórt hlutverk í langlífinu. Að forðast þetta tvennt hafi haldið honum gangandi í gegnum tíðina, en hann segist aldrei hafa hatað og ávallt reynt að horfa á lífið jákvæðum augum.

„Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að reiði sé eitt af því sem étur fólk upp að innan – og hatrið líka,“ segir leikarinn í samtali við People.

„Það hafa verið hlutir sem mér mislíkar, fólk sem mér mislíkar og kann ekki við. En ég hef aldrei náð að hata nokkurn með heift.“

Hann bætir þó við að eiginkona hans, Arlene, hafi líka haldið honum ungum í hjarta en hún er aðeins 54 ára.

„Án efa þá er ástarsamband okkar mikilvægasta skýringin á því hvers vegna ég hef ekki visnað eða orðið fúll einsetursmaður,“ skrifaði Van Dyke í grein hjá The Times nýlega.

„Arlene er helmingi yngri en ég og hún lætur mér líða eins ég sé þriðjungi eða fjórðungi yngri, sem er nú samt ansi mikið.“

Langlífið er þó ekki dans á rósum. Leikarinn tekur fram að flestir af hans nánustu vinum í gegnum ævina séu látnir. Það sé eins einmanalegt og það hljómar. Leikarinn er þó ekki farinn að horfa ofan í eigin gröf og heldur sér virkum. Hann er að gefa út nýja bók: 100 reglur til að verða 100 ára. Hver regla í bókinni byggir á hans eigin reynslu.

„Hver regla á rætur að rekja til sögu úr lífi mínu sem ég tel að hafi fest sig í minni mínu fyrir góða ástæðu – því þessar minningar hafa mikið tilfinningalegt gildi.“

Andlega segist leikarinn upplifa sig 13 ára enn og hann vaknar aldrei í vondu skapi. Hans þekktasta hlutverk var í kvikmyndinni Mary Poppins og segir að hlutverkið hafi gert hann ódauðlegan.

„Eins lengi og börnin buna enn stolt úr sér nýja orðinu:Supercalifragilisticexpialidocious, eða syngja og valhoppa við lagið Chim Chim Cher-ee, þá er mikilvægasti hlutinn af mér ávallt á lífi.“

Dauðann óttast hann þó ekki.

„Þegar þinn tími er liðinn þá er hann liðinn. Ég óttast ekki dauðann fyrir einhverja ástæðu. Ég get ekki útskýrt hvers vegna. Ég hef lifað svo dásamlega innihaldsríku og spennandi lífi að ég get ekki kvartað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Svona eiga Jón og Hafdís saman – „Ástin er brennandi“

Svona eiga Jón og Hafdís saman – „Ástin er brennandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensk leikkona á sér tvífara í öðru landi

Íslensk leikkona á sér tvífara í öðru landi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gímaldin gefur út nótnahefti og helmingur rennur til verkefna á Gaza

Gímaldin gefur út nótnahefti og helmingur rennur til verkefna á Gaza
Fókus
Fyrir 5 dögum

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug
Fókus
Fyrir 5 dögum

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk