fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
433Sport

United í rassíu gegn bröskurum með miða – Hafa lokað á 22 þúsund miða á þessu tímabili

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 29. nóvember 2025 13:30

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur varað við sívaxandi vandamáli með miðabrask sem hefur leitt til hótana og yfirgangs gegn starfsfólki félagsins.

Að sögn United hafa stuðningsmenn grátið eftir að hafa komist að því að miðar sem þeir keyptu fyrir leiki á Old Trafford voru falsaðir eða ekki til, miðabraskar selja þá oft mörgum sinnum. Eitt dæmi sýnir að stuðningsmaður borgaði 900 pund fyrir miða á útisvæði gegn Liverpool.

Endursala miða er ólögleg í Bretlandi, en þetta gildir ekki um fyrirtæki erlendis, sem gerir baráttuna erfiða. Braskið hefur færst yfir á Facebook og WhatsApp, þar sem auðvelt er að fela raunverulega aðila og erfitt að koma upp um þá.

Á fyrsta hluta tímabilsins hefur félagið stöðvað eða ógilt 22 þúsund miða og lokað fyrir rúmlega 4.500 notendur.

United telur að 10–15% af 47.000 ársmiðum félagsins séu í höndum braskara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fékk 21 árs dóm fyrir voðaverkin – Var allsgáður er hann framdi verknaðinn

Fékk 21 árs dóm fyrir voðaverkin – Var allsgáður er hann framdi verknaðinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tvö ensk stórlið auk Barcelona og Bayern á eftir pólsku ungstirni

Tvö ensk stórlið auk Barcelona og Bayern á eftir pólsku ungstirni
433Sport
Í gær

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Í gær

Tveir ungir leikmenn svöruðu Amorim á Instagram – Eyddu báðir þessum færslum síðar

Tveir ungir leikmenn svöruðu Amorim á Instagram – Eyddu báðir þessum færslum síðar