fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Íslenska lögreglan handtók lögfræðing frá Írak – „Gallað réttarfar frá upphafi til enda“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 3. júní 2019 18:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ali Alameri, lögfræðingur frá Írak, hefur verið handtekinn með það fyrir augun að undirbúa brottvísun hans frá landinu. Ali Alameri hefur sótt um hæli á Íslandi. Ali kom við sögu í uppákomu sem varð í Salnum í Kópavogi í vor þegar nokkrir hælisleitendur reyndu að vekja athygli á málstað sínum á fundi Sjálfstæðisflokksins um Orkupakka 3. Starfsmenn á fundinum sem sögðust vera lögreglumenn, en eru það ekki, lentu þá í átökum við Ali og félaga hans.

Fjallað er um málið á Facebook-síðunni „Ekki fleiri brottvísanir“ og vakin athygli á því að svo virðist sem varpa eigi Ali úr landi á meðan kæra hans á hendur starfsmönnum á fundinum er enn til meðferðar. Ali kærði meinta árás manns sem þóttist vera lögreglumaður á fundinum og það mál er til meðferðar en svo virðist sem Ali verði rekinn úr landi áður en skýrslutökur hafa átt sér stað í kærumáli hans. Þetta segja samtökin sem hér halda fram málstað Ali að sé dæmi um gallað réttarfar. Farið er yfir málið í ágætlega skýrum en stuttum pistli sem er svohljóðandi:

Ali Alameri, lögfræðingur frá Írak sem sótti um hæli á Íslandi og varð nýverið fyrir árás manns sem þóttist vera lögreglumaður, hefur verið handtekinn til undirbúnings brottvísunar. Hann lagði nýverið fram kæru vegna árásar þykjustu-lögreglunnar, sem átti sér stað í Salnum í Kópavogi. Málið er á borði héraðssaksóknara, en skýrslutökur hafa ekki átt sér stað.

Vissulega gengur hæliskerfið sinn gang alla daga, en það er ekki boðlegt í réttarríki að vitni og fórnarlömb glæpa séu send úr landi áður en mál þeirra hefur verið tekið til rannsóknar.

Héraðssaksóknari hefur enn færi á að bregðast við, en þar sem þessi handtaka (líkt og nær allar svona handtökur) á sér stað eftir skrifstofutíma, og þar sem brottvísunin mun eiga sér stað fyrir skrifstofutíma í fyrramálið, er fljótséð að enginn getur brugðist við með hjálp þeirra stofnana sem málið varðar.

Þetta er, með öðrum orðum, gallað réttarfar frá upphafi til enda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt