fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fréttir

Allt á suðupunkti í Ísrael vegna Hatara: „Eitrum matinn þeirra ef þeir eru í Ísrael“

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 16. apríl 2019 09:35

Hatari keppir fyrir hönd Íslands í Eurovision.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardaginn birti ísraelski fréttamiðilinn the Jerusalem Post frétt um komu Hatara til landsins vegna Eurovision-söngvakeppnarinar. Skrifað var um þann usla sem Hatari hefur nú þegar valdið í Ísrael, til dæmis þegar þeir skoruðu á forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, í glímu.

Athugasemdirnar sem fylgdu fréttinni voru mörg hver furðuleg og jafnvel heldur óviðeigandi. Svo virðist vera að almenningur í Ísrael sé ekki að deyja úr spenningi yfir komu Hatara, ef svo má segja.

Hér má svo sjá nokkur ummæli sem birtust:

„Það er öruggt fyrir and-ísraelsku Eurovision-hljómsveitina frá Íslandi að heimsækja Ísrael. Ísrael er lýðræðisríki þar sem furðufuglar eins og þeir eru ekki elskaðir, en þó umbornir. Það er erfitt að ímynda sér hvernig tekið yrði á móti sömu hljómsveit í múslimaríkjum eins og Jemen eða Indónesíu. Íslensku hljómsveitinni er alveg sama um raunveruleikann. Þeir eru algjörir gyðingahatarar án þess að vita að þeir sjálfir eru vandamálið.“

„Horfi á herramanninn í miðjunni, með þetta vinalega, blóðuga andlit og fallegu augu… allt sem hann segir yrði SVO sannfærandi. Hvernig getum við staðist hans gáfulegu úthugsuðu skoðun?“

„Skamm Ísland. Ef þetta „fólk’ er útsendarar þeirra, þá eru þau mjög veik.“

„BDSM, segið þið? Ég vildi að ég gæti framkvæmt allar mínar villtustu fantasíur á hann…“

„Fjölskyldur þeirra gætu verið með langa sögu af geðrænum vandamálum……..útaf öllu sifjaspellinu.“

„Sendið víkingana/Írana aftur í Rassland.“

„Eitrum matinn þeirra ef þeir eru í Ísrael.“

„Líkt og Roger Waters, hafa þeir selt sál sína djöflinum.“

„Ég hef ekki séð svona furðulegan hóp af homma-strákum síðan ég sá the Village People! Við ættum að leyfa hernum að æfa sig á þeim.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ók drukkinn og á ofsahraða þegar banaslysið varð – Nú er búið að kveða upp dóm í málinu

Ók drukkinn og á ofsahraða þegar banaslysið varð – Nú er búið að kveða upp dóm í málinu
Fréttir
Í gær

Vilborg segir að fólki sé misboðið vegna ákvörðunar Morgunblaðsins

Vilborg segir að fólki sé misboðið vegna ákvörðunar Morgunblaðsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“