Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin varðandi WOW air. Hann segist ekki sjá neina réttlætingu í því að setja skattfé í áhætturekstur og vísar þannig í rekstur flugfélagsins sem stendur höllum fæti.
Bjarni ræddi þetta við mbl.is í hádeginu. Fundað var í stjórnarráðinu í morgun en Bjarni segir fundurinn hafi ekki verið um vanda WOW. Hann segist vona að farsæl niðurstaða fáist í málið fyrir ferðaþjónustuna í landinu og ljóst sé að miklir hagsmunir séu í húfi.
Bjarni segir að í raun hafi ekkert breyst varðandi að komu stjórnvalda eftir að tilkynnt var um viðræðuslit WOW og Icelandair Group. „Þarna er um að ræða fyrirtæki í einkaeigu sem er að reyna að greiða úr sínum fjárhagsvanda og það hefur ekkert breyst.“
Bjarni var einnig spurður að því hvort til greina kæmi að fara sömu leið og Þjóðverjar fóru þegar flugfélagið Air Berlin fór í þrot. Þá lögðu þýsk yfirvöld skiptastjóra félagsins fé til að halda rekstrinum gangandi þar til nýr eigandi kom að borðinu. Bjarni segir ekki komið að því að tala um neitt slíkt.
„En stjórnvöld eru vel upplýst og vita hvað getur gerst. Við höfum ekki rætt um að stíga inn í þennan vanda,“ sagði Bjarni sem bætti við að hann hefði haft áhyggjur af því að langan tíma tæki að greiða úr fjárhagsvandanum.
„Við erum að horfa á flugrekstur frá Íslandi, sem er í blóðugri alþjóðlegri samkeppni, meðal annars við mjög stór alþjóðleg fyrirtæki sem eru sömuleiðis í vanda. Svo markaðsaðstæður eru allar mjög erfiðar, að því er virðist, og samkeppnin gríðarleg,“ segir Bjarni sem var að lokum spurður að því hvort stjórnvöld myndu ekki blanda sér í málefni félagsins. Bjarni svaraði því til:
„Ég hef áður sagt að við sjáum ekki neina réttlætingu í því að setja skattfé inn í þennan áhætturekstur. Það er sú lína sem við höfum haft og það er enn í gildi.“