Hlyni Má Vilhjálmssyni var gróflega misboðið þegar námskeiðshaldari hjá Vinnumálastofnun lýsti yfir reiði yfir framkomu hælisleitenda á mótmælunum í gær.
„Ég rauk rétt í þessu út af námskeiði hjá Vinnumálastofnun vegna þess að námskeiðshaldarinn byrjaði að tala um hversu reið hún hafi verið í gærkvöldi yfir því að hælisleitandi hafi ekki staðið rólegur og spilað á trommur í einhverjum kósý mótmælum niðri í bæ heldur æpt á lögreglu sem henti honum í jörðina af engri sérstakri ástæðu og miðað svo piparúða á hann.“
Hlynur tilkynnti hópnum jafnframt að hann hyggðist kvarta yfir athæfinu til Vinnumálastofnunnar. Hlynur segist tengja við baráttu hælisleitenda því hann sjálfur sé í mannréttindabaráttu gegn kerfinu.
„Sú staða að vera í að þurfa að biðja þann sem kvelur þig eða hefur kvalið þig um hjálp þegar engin önnur leið er í boði er viðurstyggileg staða.“
Í samtali við blaðamann sagði Hlynur að námskeiðið fjallaði um styrkleika. Námskeiðshaldari hefði tekið víðsýni sem dæmi um styrkleika og sett það í samhengi við mótmæli hælisleitenda.
„Setti það í samhengi við að hún hafi orðið reið þegar hún hafi séð hælisleitanda í kvöldfréttum í gær hrópa að lögreglu og vera með læti á svipuðu augnabliki og lögregla hendi honum í jörðina og miðaði piparúða á hann. Námskeiðshaldarinn sagði að hælisleitandinn hefði betur mátt vera þakklátur fyrir að vera kominn til Íslands, fjölmargir væru ekki í þeirri stöðu að geta komist hingað og fengið hjálp.“
Þetta reitti Hlyn til reiði. Hann sagði blaðamanni að hann hafi verið í samskiptum við Rauða Krossinn á Íslandi varðandi stöðu hælisleitenda sem dvelja á Ásbrú og hefur honum verið tjáð að staða hælisleitendanna sé slæm og aðstæður þeirrar slæmar.
„Verkefnastjóri Rauða krossins tjáði mér að aðstaðan væri ekki boðleg dýri hvað þá manni.[…] Með þessar miklu upplýsingar finnst mér óboðlegt að sitja undir því að véfengdur sé að einhverju leyti réttur hælisleitendanna til að mótmæla. Ég tengi það við mína eigin baráttu við barnaverndarkerfið þar sem ekki er hlustað á mig og engin ábyrgð tekin þrátt fyrir að barnavernd hafi kvalið mig með vinnubrögðum sínum þegar ég var barn og unglingur.
Barátta hælisleitenda minnir Hlyn um margt á hans eigin baráttu við kerfið. Kerfi þar sem ekki er hlustað, engin tekur ábyrgð og kerfi sem veldur þeim sem eftir aðstoð þess leita kvölum.
„Þess vegna lít ég á ofbeldi gegn hælisleitendum sem ofbeldi gagnvart mér því að ég upplifi nákvæmlega sama skort á mannúð í íslenska fósturkerfinu eins og er nú gagnvart hælisleitendum.“