Á síðasta ári fluttu rúmlega 6.500 fleiri erlendir ríkisborgarar til landsins en frá því. Frá 2012 hafa um 25.500 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því. Á þessum tíma hefur íbúum landsins fjölgað um 37.500. Nær öll ár yfirstandandi aldar hafa fleiri Íslendingar flutt frá landinu en til þess. Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir mikinn launajöfnuð eiga hlut að máli.
Þetta kemur fram í
Morgunblaðinuí dag. Þar er haft eftir Ásgeiri að það sé eftirsóknarvert fyrir ófaglærða útlendinga að fá störf hér á landi vegna launajafnaðar en launajöfnuðurinn fæli einnig menntað fólk frá landinu. Það leiti í betur launuð störf erlendis þar sem fólki með markaðsvæna menntun bjóðast hærri laun.
„Á Norðurlöndunum eru það fjölþjóðleg fyrirtæki sem bjóða bestu starfstækifærin. Slíkt skortir hérlendis að einhverju leyti.“
Er haft eftir Ásgeiri.