„Ég er reið, alveg svaðalega reið, en sem betur fer gríp ég bara til „pennans“ en ekki hnefans,“ segir Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir í grein sem hún skrifar í Morgunblaðið í dag. Hún er fjögurra barna móðir, þar af á hún þrjá syni sem eru lögblindir og því „dæmdir til ævilangrar fátæktar og eru í raun allar bjargir bannaðar.“ Eiginmaður hennar, sem hefur stritað alla ævi, slasaðist í vinnunni og fékk krabbamein í ofanálag. Hún segir:
Ég á fjögur börn, þar af þrjá stráka sem allir eru fæddir lögblindir og tilheyra því þeim hópi sem kallast öryrkjar. Þeir eru dæmdir til ævilangrar fátæktar og eru í raun allar bjargir bannaðar.
Þau hjónin héldu að þar sem hann hefði greitt í lífeyrissjóð alla ævi þá myndi þetta sleppa fjárhagslega, fengu þau 1,1 milljón króna frá lífeyrissjóðnum. „Næsta ár brá okkur heldur betur í brún því Tryggingastofnun krafði bóndann um rúmar 900.000 kr. vegna ofgreiðslu örorkubóta. Það var vegna þess að hann hafði svo miklar tekjur,“ segir Sigurlaug og bætir við:
En þetta tók Tryggingastofnun nánast allt aftur til sín. Hin svokallaða eign í lífeyrissjóði skilaði því í raun engu nema sárindum og reiði og gríðarlegu álagi á fjölskylduna. Undrast nokkur að ég sé reið?
Þá segir Sigurlaug einnig:
En strákarnir mínir fá ekki krónu úr sínum sjóði því reglurnar eru þannig að þú færð greitt úr sjóðnum miðað við þær tekjur sem þú hafðir áður en þú ferð á örorku. Þar sem þeir eru fæddir svona er vitaskuld ekki um neinar tekjur að ræða fyrir örorku. Það þýðir að þeir öðlast aldrei sama rétt til greiðslna og aðrir en þurfa samt að greiða í sjóðinn af öllum sínum launum. Þykir þetta í lagi?
Reiði Sigurlaugar er uppsöfnuð. Hún beinist að stjórnvöldum sem afnema ekki króna-á-móti-krónu skerðingum á örorkubótum. Reiðin beinist líka að hagsmunasamtökum öryrkja og konunni sem sagði nýverið að það væri betra að fara á örorkubætur og fá íbúð hjá ÖBÍ en að vera á leigumarkaði: „Við þann lestur sauð upp úr hjá mér.“
Sigurlaug segir að hún skilji ekki hvernig fólk sem er við fulla heilsu taki ekki undir með öryrkjum og láti eins og kröfur þeirra komi sér ekki við:
„Hvað gerist ef fólk missir heilsuna? Er það til í að hafa þær tekjur sem hér að ofan greinir?“
Hún segir hið margumtalaða starfsgetumat vera olíu á eld reiðinnar þar sem hver sem „hefur fulla fimm“ ætti að sjá hvað það sé vitlaust. Innan þings og stjórnsýslu átti fólk sig ekki á hversu gallað kerfið sé eða standi á sama:
„Það er alveg kristaltært að hver sá sem mælir með þessu mati hefur ekki glóruhugmynd um líf öryrkja og hvorki hæfileika né vilja til að setja sig inn í þær aðstæður. Þeim sem mæla með þessu mati býð ég að hitta mig og ræða við mig og mína auglitis til auglitis því það væri allt of langt mál að rökstyðja það hér í litum greinarstúf. Ég er hins vegar viss um að ekkert ykkar hefur í raun áhuga á að vita meira, því þetta snýst jú allt um peninga hvað ykkur varðar. Og ekki reyna að segja mér að þeir peningar séu ekki til.“
Þá beinir Siglurlaug orðum sínum til formanna stjórnmálaflokkanna í ríkisstjórn:
Katrín, Bjarni og Sigurður, skammist til að standa við gefin loforð og afnemið strax krónu-á-mótikrónu-skerðinguna. Það væri a.m.k. góð byrjun, eða segið af ykkur ella. Þetta gengur einfaldlega ekki lengur.