Fréttir

„Allt mun loga í febrúar ef ekki semst“

Mynd

Að mati margra forystumanna verkalýðshreyfingarinnar ganga kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins (SA) alltof hægt fyrir sig. Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, segir að allt muni loga á vinnumarkaði í febrúar ef samningar nást ekki.

Þetta kemur fram í

Morgunblaðinu

í dag. Þar er haft eftir Aðalsteini að menn verði að einsetja sér að setja kraft í viðræðurnar með það að markmiði að ljúka þeim á næstu tveimur vikum.

„Ef svo verður ekki tel ég að verkalýðshreyfingin telji sig knúna til þess að fara í aðgerðir.“

Er haft eftir honum.

Sýn verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda á gang viðræðnanna er mismunandi því Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, sagði í samtali við Morgunblaðið að viðræðurnar væru á góðu róli.

Haft er eftir Aðalsteini Árna að mikilvægur tímapunktur sé runninn upp í viðræðunum.

„Hver mánuður er dýr fyrir okkar fólk en á sama tíma sparar atvinnulífið sér milljarða. Ef ekkert skýrist fyrr sé ég fyrir mér átök upp úr næstu mánaðamótum og sumir vilja jafnvel að það verði fyrr. Það mun í það minnsta allt loga í febrúar semjist ekki.“

Sagði hann.