fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
Fréttir

Óbyggðaævintýri með Gæslunni

Svarthöfði vill sjá Landhelgisgæsluna stíga skrefið til fulls og fara á fullt í ferðaþjónustu

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 9. mars 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfða var skemmt yfir lestri fréttarinnar hér að ofan um útsýnisflug Landhelgisgæslunnar.

Þyrlan, TF-SYN, var leigð erlendum auðmanni sem þurfti nauðsynlega að skoða Jökulsárlón. Að sjálfsögðu þótti eðlilegt að verða við þeirri beiðni og í raun má velta fyrir sér hvers vegna floti gæslunnar; sem samanstendur af þyrlu, flugvél og varðskipum, sé ekki notaður oftar fyrir erlenda túrista. Það er eins og menn þar á bæ átti sig ekki á öllum tekjumöguleikunum.

Landhelgisgæslan, eins og aðrar opinberar stofnanir, glímir við ákveðinn rekstrarvanda. Milljónir vantar í reksturinn og þá eru góð ráð dýr. Leita þarf leiða til að stilla bókhaldið af og hvaða leið er betri en að þjónusta erlenda auðmenn sem eru uppfullir af ævintýraþrá?

Möguleikarnir fyrir Georg Lárusson, forstjóra Gæslunnar, eru endalausir. Hvaða skíðaáhugamaður með veski fullt af peningum væri ekki til í að borga nokkra hundrað þúsund kalla fyrir að láta skutla sér upp á jökul og skíða niður? Byssuáhugamenn, til dæmis frá Bandaríkjunum, gætu fengið að skjóta úr fallbyssunum sem eru um borð í varðskipunum. Moldríkir adrenalínfíklar gætu fengið að fara með sigmanni Gæslunnar og síga niður í skip sem grunuð eru um landhelgisbrot. Og svo loks þegar eldgos brýst út verður sannkölluð gósentíð, enda yrði ásóknin í útsýnisferðir væntanlega mikil.

Á tímum þegar þröngt er í búi þarf að hugsa út fyrir kassann og miðað við frétt DV í dag er það nákvæmlega það sem Georg og félagar eru að gera. Þeir þurfa bara að stíga skrefið til fulls og fara „all-in“.

Þessar örfáu hugmyndir gætu skilað stofnuninni tugum milljóna í kassann á hverju ári. Ferðaþjónustudeild Landhelgisgæslunnar myndi hreinlega moka inn seðlum sem er það sem lífið snýst um, eins og auðkýfingarnir og nýjustu kúnnar Gæslunnar vita.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Í gær

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð
Fréttir
Í gær

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd

Fyrir 2 dögum

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug