Dagurinn í dag markar ákveðin tímamót í verslunarsögu miðborgar Reykjavíkur með opnun H&M og H&M Home á Hafnartorgi en samhliða opnun þeirra verslana opnar fyrsti áfangi Hafnartorgs.
„Með þessum merkilega áfanga snýr verslun í miðborginni úr vörn í sókn og lifandi tenging skapast frá gamla miðbænum yfir á svæðin kringum Hörpu og höfnina,“ segir í fréttatilkynningu frá Reginn.
Þá kemur fram að á næstunni muni svo fleiri spennandi alþjóðlegar verslanir opna á Hafnartorgi auk þess sem um 1.100 bílastæði muni bætast við í kjallaranum undir svæðinu með tengingu við bílakjallara Hörpu.
„Með opnun fjölda nýrra verslana og tilkomu þekktra alþjóðlegra vörumerkja eykst aðdráttarafl miðborgarinnar sem jafnframt skapar fleiri tækifæri til að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu á svæðinu. Við öll sem stöndum að verkefninu höfum gríðarlega trú á því og vitum að miðborg Reykjavíkur mun eflast með tilkomu nýrra og glæsilegra verslunarrýma. Fyrsti áfangi Hafnartorgs opnar í dag en ætlunin er að Hafnartorg verði að fullu komið í rekstur um miðjan apríl og fyrsti hluti bílakjallarans verður opnaður í desember á þessu ári “
segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins.