Raphael Schutz, sendiherra Ísraels á Íslandi, fundaði fyrr í dag með Eurovision-sendinefnd RÚV. Samkvæmt frétt RÚV var ástæða fundarins meðal annars áhyggjur Ísrael af hörðum viðbrögðum Íslendinga við sigur landsins í Eurovision.
Ríflega 25 þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem skorað er á RÚV að sniðganga keppnina á næsta ári. Felix Bergsson, fararstjóri íslenska hópsins, segist í samtali við RÚV fyrst og fremst hafa hlustað á áhyggjur Schutz.
„Við vildum bara sýna honum þá kurteisi að hitta hann fyrst hann bað um að hitta okkur, Hann vildi bara heyra hver staðan var á okkur. En við vorum bara fyrst og fremst að hlusta,“ segir Felix í samtali við RÚV.