fbpx
Fimmtudagur 14.ágúst 2025
Fréttir

Jón umskorinn í æsku og afleiðingarnar skelfilegt einelti: Allir hlupu burtu þegar þessi með afskræmda typpið var að koma

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 29. apríl 2018 19:56

Mynd: Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Helgi Þórarinsson er einn fárra Íslendinga sem eru umskornir. Hann var umskorinn er hann var sex mánaða gamall eftir að fjölskylda hans flutti til Bandaríkjanna. Jón, sem er rúmlega fimmtugur að aldri, spurði einu sinni móður sína hvers vegna þetta hefði verið gert við sig og hún sagði að þetta hefði bara verið vaninn.

Jón var í viðtali við RÚV í kvöld og þar segir hann að það verði að banna umskurð drengja á Íslandi en frumvarp þess efnis var lagt fyrir Alþingi þaðan sem því var vísað aftur til ríkisstjórnar; hefur frumvarpið vakið miklar deilur bæði í samfélaginu og út fyrir landsteinana.

Þegar Jón sneri aftur barnungur til Íslands tók við skelfilegt einelti því hann var eini umskorni drengurinn í skólanum:

„Ég veit ekki hvort fólk getur gert sér í hugarlund hvað það þýðir að vera eini umskorni strákurinn í skólanum. Það heita helvíti sem þú þarft að ganga í gegnum hvern einasta dag, kvölds og morgna, í hádeginu, í íþróttatímanum. Þú kemur í sturtu og það hlaupa allir í burtu af því að af því að hann þarna með afskræmda typpið er að koma. Það veit enginn hvað þetta er heldur. Það hafði enginn heyrt um umskurð, þannig að það var verið að finna alls kyns nöfn fyrir fyrirbærið. Venjulegast var svona brettutyppi notað í mikið af söngvunum. Að upplifa það að vera átta, níu ára og tíu ára, að það eru til söngvar um typpið á þér sem allir kunna, sem eru gjarnan kyrjaðir í skólastofunni áður en kennarinn kemur inn, á leiðinni heim, á aftasta bekk í bíó og alls staðar,“ sagði Jón Helgi í viðtali við RÚV.

Jón segir einnig að líkamlegur sársauki hafi hlotist af umskurðinum: „Ég man þegar ég er fimm, sex og ára gamall. Það er enn þá allt helaumt og má ekkert við koma.“

Jón hefur reynt að fá áheyrn hjá ráðamönnum til að koma á framfæri boðskap sínum gegn umskurði en án árangurs. Hann sagði á tilfinningaþrungnu augnabliki í viðtalinu við RÚV: „Við verðum að koma þessu í gegn, við verðum…“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rússar virðast hafa hakkað sig inn í bandarískar tölvur sem innihalda viðkvæm dómskjöl

Rússar virðast hafa hakkað sig inn í bandarískar tölvur sem innihalda viðkvæm dómskjöl
Fréttir
Í gær

Síbrotakonan í Bríetartúni sögð hafa barið karlmann með kúbeini – Á yfir höfði sér útburð úr húsinu

Síbrotakonan í Bríetartúni sögð hafa barið karlmann með kúbeini – Á yfir höfði sér útburð úr húsinu
Fréttir
Í gær

Leigja íbúðarhús í staðinn fyrir myglaða skólann

Leigja íbúðarhús í staðinn fyrir myglaða skólann
Fréttir
Í gær

Fjölskyldan setti sér skýrar reglur um skjánotkun: „Með þessum reglum höfum við nánast hætt að rífast um skjátíma á mínu heimili“

Fjölskyldan setti sér skýrar reglur um skjánotkun: „Með þessum reglum höfum við nánast hætt að rífast um skjátíma á mínu heimili“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessum bílum er oftast stolið í Bandaríkjunum – Eigendur Tesla í góðum málum

Þessum bílum er oftast stolið í Bandaríkjunum – Eigendur Tesla í góðum málum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður segir algengt að foreldrar misnoti vald sitt og kallar eftir harðari viðurlögum

Lögmaður segir algengt að foreldrar misnoti vald sitt og kallar eftir harðari viðurlögum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sema Erla var vistuð á Stuðlum – „Þetta voru stormasöm ár, ég var ekki stilltur unglingur“

Sema Erla var vistuð á Stuðlum – „Þetta voru stormasöm ár, ég var ekki stilltur unglingur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hanna Katrín lýsir leiðinlegri upplifun fjölskyldu úr Grafarvogi á Snæfellsnesi

Hanna Katrín lýsir leiðinlegri upplifun fjölskyldu úr Grafarvogi á Snæfellsnesi