Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaður í fótbolta, segir kostulega sögu í þættinum Draumurinn um HM, sem sýndur verður á RÚV í kvöld. Hann lék með Brentford á Englandi á árunum 2005 til 2007 og lenti þá í því að vera handtekinn af sérsveitinni þar, þó algjörlega saklaus.
Ólafur segist hafa lent í þessu þegar hann var að keyra á æfingu með Brentford. „Ég legg af stað bara eins og venjulega, þetta var venjulegur dagur og ég stoppa á rauðu ljósi og ég sé að það er lögreglubíll fyrir aftan mig og ég sé alveg greinilega að hann er að tala í talstöðina og hann er að glápa á númeraplötuna hjá mér,“ segir Ólafur.
Hann segir þegar hann var kominn á æfingasvæðið voru margir lögreglubílar á eftir honum. Einn sérsveitarmaður, grár fyrir járnum, bankar á rúðu hans: „Ég vissi ekkert hvað var að gerast. Svo leita þeir í bílnum og fundu auðvitað ekkert. Þá kom í ljós að í mínu hverfi, sem ég bjó í, var einhver sem hafði veifað byssu á lögregluþjón og hoppað upp í silfurlitaðan bíl á erlendum númerplötum, akkúrat á þessum tíma.“