fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Þorvaldur fannst látinn í Fossvogsdal í desember: „Ég hef alltaf sagt að hann hafi verið drepinn“

Hafði verið hótað af mönnum úr undirheimum – Móðir vill rannsókn

Hjálmar Friðriksson
Mánudaginn 15. janúar 2018 09:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur villtist ungur af leið niður í undirheimana. Hann gerði tilraunir til að komast út úr myrkrinu og viðbjóðnum en þær báru ekki árangur. Hann hélt þó góðu sambandi við fjölskyldu og vini sem lýsa honum sem góðhjörtuðum manni með stórt hjarta. Þorvaldur var á leið til Spánar þann 13. desember. Daginn fyrir ferðina fannst hann látinn, aðeins 35 ára að aldri.

Líkið fannst í Fossvogsdal um klukkan fjögur síðdegis þann 12. desember. Í fyrstu fréttum var sagt að rannsókn stæði yfir til að skera úr um hvort um slys hefði verið að ræða en samkvæmt lögreglu benti ekkert til að neitt saknæmt hefði átt sér stað. Móðir Þorvaldar, Kristín Guðmundsdóttir, og aðstandendur eru hrædd um að Þorvaldi hafi verið ráðinn bani. Á líkinu hafi verið áverkar og Þorvaldur sætt hótunum dagana fyrir andlátið. Lögregla hélt sig enn við þá niðurstöðu að ekkert saknæmt hefði átt sér stað þegar DV leitaði viðbragða.

Kristín segist hafa fengið mjög mismunandi svör frá lögreglu um hvernig Þorvaldur fannst. „Lögregla sagði okkur fyrst að höfuðáverkar bentu til að hann hefði dottið aftur fyrir sig. Og hann væri með stungusár víða um líkamann, en ekki eftir hníf. Daginn eftir fengum við að sjá hann, þá spurðum við út í áverka á andliti, hálsi og meira. Svarið þá var að hann hefði legið á grúfu,“ segir Kristín.

Á leið til Spánar

Erfið stund móður
Móðir kveður son sinn Erfið stund móður

Kristín var með syni sínum degi fyrir andlátið. Þau höfðu átt góða stund saman og hún ekið honum að hitta vinkonu sína. Hann var á leið með bróður sínum til Spánar og allt virtist leika í lyndi. Sonur hennar var fíkill sem hélt, eins og áður segir, sambandi við sína nánustu. Þann 11. desember virtist nokkuð bjart yfir Þorvaldi. Að vísu hafði honum borist hótanir frá manni sem hafði lagt á hann skuld eins og það er kallað. Slíkt tíðkast í undirheimunum og getur skuld sem er 50 þúsund orðið að 500 þúsund krónum eða fimm milljónum á einni nóttu hafi ekki verið gengið frá greiðslu eða skuldarinn brúkað munn.

Kristín kvaddi son sinn sem steig út úr bílnum og gekk burt. Hann ætlaði að kasta kveðju á vinkonu sína. Kristín átti ekki eftir að sjá son sinn á lífi. Síðan þá hefur Kristín vart matast. Hún settist með blaðamönnum á Kringlukrána og á meðan þeir gæddu sér á hádegisverði fékk hún sér kaffisopa. „Ég furða mig á, að aðeins einum degi eftir að lík hans fannst, hélt lögregla fram að ekkert saknæmt hefði átt sér stað,“ segir Kristín.

Heilsuhraustur

Rannsókn er ekki lokið og niðurstaða krufningar liggur ekki fyrir. Bráðabirgðaniðurstaða gat ekki gefið fjölskyldu í sárum nein svör. Kristín dregur ekki dul á að Þorvaldur hafi verið í neyslu en hann hafi þó verið heilsuhraustur og ekki kennt sér meins þegar hún var með honum degi áður en hann lést. „Ég hef alltaf sagt að hann hafi verið drepinn. Ég fer ekki ofan af því.“

Hún segir að fjölskylda hans hafi ekki hugmynd um hvar hann var síðustu 16 klukkustundir lífsins, sem sé mjög óeðlilegt að þeirra sögn. „Ef hann hefði verið á meðal vina þá værum við búin að heyra af því. Það er eins og engin geti sagt neitt. Við leituðum að honum og hringdum í vini, en engin vissi um hann. Alveg sama hvað, þá týndist hann aldrei svona. Þetta fannst lögreglunni ekkert skrítið miðað við líferni hans, en við sem þekktum hann vitum að þetta var óeðlilegt, þótt hann hafi verið í neyslu. Áhugaleysi lögreglu er algjört,“ segir Kristín.

Undirheimamenn höfðu hótað

Kristín telur líklegast að Þorvaldur hafi látist eftir árás. Þegar hún fékk loks að skoða líkið tók hún eftir augljósu mari á andliti hans og bringu. Á mynd hér til hliðar lítur út fyrir að Þorvaldur hafi verið beittur ofbeldi. Kristín segir enn fremur að við snertingu hafi hún fundið að hann væri viðbeinsbrotinn. Ofan á þetta bætist að Þorvaldur hafði með sér poka með tölvum þegar hann gekk inn í Fossvogsdalinn en sá poki fannst nokkrum metrum frá líkinu. Tölvurnar voru í molum og því ljóst að þær féllu ekki einungis í jörðina. Þá hafi Þorvaldur verið rukkaður um fíkniefnaskuldir nokkrum dögum áður en hann lést.

„Undirheimarnir höfðu hótað honum. Ég fer ekki ofan af því að hann hefur verið barinn. Þegar við skoðuðum hann nánar tókum við eftir að hann var bæði nef- og viðbeinsbrotinn. Það eru líka áverkar á augabrún og á nefi. Á fingraförum á líkinu má merkja að hann hafi verið tekinn kverkataki.“

Kristínu finnst lögregla sýna málinu lítinn sem engan áhuga. Hún furðar sig enn fremur á því að ekkert hafi verið minnst á áfallahjálp þegar hún ræddi við lögreglumenn. Ofan á þetta hafi sjúkrahúsprestur á Landspítalanum sagt að hann hefði ekki tíma til að sinna þessu máli fjölskyldunnar. „Það er ekkert í gangi. Fyrir þeim er þetta einum fíklinum færra en á meðan við fáum ekki svör gróa sárin ekki. Við sem elskuðum Þorvald viljum sannleikann upp á yfirborðið. Þetta er allt mjög dularfullt. Ef þetta væri sonur áhrifamanns í samfélaginu væri búið að kalla út alla mögulega menn til að leysa málið,“ segir Kristín og bætir við: „Við vorum mörg sem elskuðum hann og hann var falleg sál sem elskaði marga þótt hann hafi villst af leið. Við viljum svör.“

Sárt saknað

Þorvaldar er sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Kristín, móðir hans, lýsir honum sem lífsglöðum og skemmtilegum manni. Þau hittust nær daglega óháð því hvort hann hafi verið í neyslu eður ei. „Hann var bæði dýravinur og mannvinur,“ segir Kristín.

Á samskiptamiðlum hafa margir tjáð sig um mannkosti hans og ljóst að vinahópurinn var nokkuð stór. Kristín skrifaði á Facebook-síðu sína: „Sakna þess svo að heyra ekki röddina þína og geta ekki knúsað þig og faðmað þig. Elska þig út í geim og til baka. Vonandi ertu í faðmi pabba þíns núna. Guð geymi þig Snúlli minn.“

Einn vina hans lýsir honum á þennan veg: „Hann Valdi var ofboðslega góður drengur sannur vinur. Hans verður sárt saknað. Hugur minn er hjá ykkur öllum.“ Hugrún Jósepsdóttir segir: „Vá ég fékk sting í hjartað þegar ég sá myndirnar. Í gær voru 2 ár síðan hann var hjá mér og hjálpaði mér að undirbúa jólin […] Sakna hlátursins og knúsanna.“

Þá segir systir hans, Harpa Særós: „Finnst þetta ekki vera satt er að bíða enn þá eftir að hann hringi til að láta sækja sig eða spjalla . Finnst hjartað mitt vera brotið. Þetta er svo ósanngjarn. Guð geymi þig Snúlli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu