Sólrún hefur ekki sést síðan hún fór heimili sínu í Rangárvallasýslu í fyrrinótt
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sólrúnu Petru Halldórsdóttur, sextán ára stúlku, sem hefur ekki sést síðan í fyrrinótt. Samkvæmt lögreglu er hún grannvaxin og um 166 sm á hæð.
Hún er með brún augu og rauðbrúnt, sítt hár. Hún er klædd í bláar og rifnar gallabuxur, svartan netabol og hvíta peysu yfir. Svartri úlpu með loðkraga og í svörtum strigaskóm.
Lögregla segir að Sólrún hafi farið frá heimili sínu í Rangárvallasýslu í fyrrinótt og hefur ekki náðst til hennar síðan. „Talið er að hún dvelji nú á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um Sólrúnu eru beðnir að hafa samband í síma 444 2000 eða 112,“ segir í tilkynningu lögreglu.